Lífið

Beyoncé steig á sviðið á minningarathöfn Kobe og Gianna og gaf tóninn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Beyoncé sat við hliðin á Vanessa Bryant, eiginkonu Kobe, allt kvöldið í salnum.
Beyoncé sat við hliðin á Vanessa Bryant, eiginkonu Kobe, allt kvöldið í salnum.

Söngkonan Beyoncé opnaði minningarathöfn Kobe Bryant og Gianna Bryant í Stalples Center í Los Angeles í gærkvöldi.

Það höfðu yfir tuttugu þúsund manns safnast saman til minnast körfuboltagoðsagnarinnar og dóttur hans.

Kobe Bryant og 13 ára dóttur hans Gianna létust í skelfilegu þyrluslysi í lok janúar skammt fyrir utan borgina Calabasas, sem er vestur af Los Angeles. Sjö aðrir féllu einnig í þyrluslysinu.

Beyoncé flutti uppáhalds lög Kobe Bryant og Gianna og var flutningurinn tilfinningaþrunginn og fallegur eins og sjá má hér að neðan.

Beyoncé gaf sannarlega tóninn fyrir kvöldið enda áttu tárin eftir að streyma allt kvöldið þegar vinir og vandamenn héldu ræður þeirra til heiðurs. Lögin sem hún flutti voru XO og Halo.


Tengdar fréttir

Minningarathöfn Kobe Bryant og Gianna

Búist er við því að um tuttugu þúsund manns verði á minningarathöfn Kobe Bryant og dóttir hans Gianna Bryant í Staples Center í Los Angeles í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.