„Ísland er kjörinn kostur fyrir hybrid ráðstefnur“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 19. ágúst 2020 09:00 „
Við vorum að tilkynna í vikunni að European Academy of Management ráðstefnan 2020 í desember verður á netinu. Þetta er stór ákvörðun. Framkvæmdastjórn EURAM frestaði í mars ráðstefnunni frá júní yfir í desember í þeirri von að það væri hægt að halda ráðstefnuna þá í Dublin. Það hefur hins vegar komið á daginn að það verður ekki hægt og því var þessi ákvörðun tekin“ segir dr. Eyþór Jónsson um EURAM ráðstefnuna en hún er ein af fjölmörgum alþjóðlegum viðburðum sem eru að breyta um fyrirkomulag í kjölfar kórónufaraldurs. EURAM ráðstefnan var haldin á Íslandi árið 2018 en þá voru ráðstefnugestir um sautján hundruð talsins. Eyþór segist vita um margar ráðstefnur sem hafa frestast, verið færðar á netið eða hreinlega felldar niður í kjölfar heimsfaraldursins. Sjálfur spáir hann því að til framtíðar verði alþjóðlegar ráðstefnur í hybrid formi en það fyrirkomulag felur það í sér að ráðstefnugestir eru bæði á netinu og á staðnum. Að mati Eyþórs eru mikil tækifæri í því fólgin að Ísland vaxi sem hybrid ráðstefnuland. Ísland sem ráðstefnuland mun eiga þar stórt tækifæri þar vegna þess að í þessum hybrid heimi þá er líka gott að geta haldið ráðstefnur þar sem öryggi fólks er haft í fyrirrúmi og það eru margir kostir að nýta aðstæður á Íslandi,“ segir Eyþór. Hann nefnir sem dæmi að í fyrra hafi hann verið nálægt því að fá EGOS ráðstefnuna til landsins fyrir Háskólann í Reykjavík. Hún hafi verið á stærð við EURAM ráðstefnuna sem haldin var hér á landi árið 2018. „En það kom á daginn að það stóð í þeim að svo margir gestir þyrftu að fljúga til landsins. Við þurfum að bregðast við með mótvægisaðgerðum og sannfæra fólk um að Ísland er kjörinn kostur fyrir hybrid ráðstefnur framtíðarinnar,“ segir Eyþór. Eyþór segir það hins vegar stórt og flókið verkefni að halda hybrid ráðstefnur. Sem dæmi lýsir hann því hvernig EURAM ráðstefnan fer fram. „EURAM ráðstefnan er í raun fjórtán ráðstefnur settar saman í eina ráðstefnu sem er keyrð á þremur til fjórum dögum. Við erum með fjórtán sérsvið sem öll hafa sína menningu og forsendur. Ráðstefnan er að fá á þriðja þúsund greinar innsendar sem eru lesnar af tveimur til þremur gagnrýnendum áður en þær eru samþykktar og þá fá höfundar að halda erindi um greinina. Þannig geta verið um 50 – 60 viðburðir á sama tíma þar sem fólk er að kynna greinarnar sínar. Ofan á þetta eru fullt af öðrum atburðum sem eru sérsaumaðar fyrir ákveðin fræðasvið eða eru fyrir alla ráðstefnugesti,“ segir Eyþór. Rafrænar ráðstefnur verða að upplifun Þegar ráðstefna EURAM var haldin árið 2018 var Eyþór í hlutverki ráðstefnustjóra en nú er hann í hlutverki Vice President hjá EURAM. „Þegar framkvæmdastjórn EURAM hringdi í mig í byrjun ársins þá vissi ég ekki um hvað erindið var. Ég hélt reyndar að þau væru að biðja um ráðgjöf varðandi stjórnarhætti en ég hef áður verið þeim innan handar um slík mál,“ sem segist vera ánægður með það traust sem honum er sýnt í nýju hlutverki þótt hann viðurkenni að hafa ekki búist við því að fá ráðstefnuna aftur í fangið eins og fyrir tveimur árum. „Það er ekkert einfalt að gera svona ráðstefnu að upplifun á netinu,“ segir Eyþór og bætir við „Þetta er talsvert önnur hugsun og ég bjó til vinnuhóp, Task Force EURAM Online 2020, sem að hefur það verkefni að hanna nýja ráðstefnu. Við höfum verið að vinna í allt sumar og verðum tilbúin í september með nýja útfærslu á ráðstefnunni,“ segir Eyþór. Að sögn Eyþórs hefur kórónufaraldurinn nú þegar haft mikil áhrif á alþjóðlegt ráðstefnuhald. Þannig segist Eyþór vita af mörgum ráðstefnum sem hefur verið frestað, þær færðar á netið eða hreinlega felldar niður. „Það sem hefur í raun gerst er að um leið og allir hafa þurft að vera með ráðstefnur á netinu þá hefur fólk lært um kosti og galla. Flestir sjá að það er hægt að gera hluti á netinu sem er ekki hægt á staðbundnum ráðstefnum. Flestar ráðstefnur verða því sennilega hybrid í framtíðinni, það er bæði á einhverjum stað og á netinu á sama tíma.” Eyþór, sem jafnframt er forstöðumaður StjórnarAkademíunnar, segist búa vel að því að Akademían hefur sérhæft sig í hybrid módeli í kennslu. Þá hefur hann í samstarfi við Rósbjörgu Jónsdóttur hjá Cognitio og fleiri unnið að því að búa til nýtt nám hjá Akademias sem felur í sér að þróa viðburði og upplifanir á netinu eða á ákveðnum stöðum. „Og það eru allir sammála hjá EURAM um að EURAM ráðstefnur framtíðarinnar verða hybrid,” segir Eyþór en verkefnið er samstarfsverkefni rúmlega fjörtíu háskóla í Evrópu.
Stjórnun Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Fleiri fréttir Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Að ná til baka tilfinningunni: Það er gaman í vinnunni Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ Góð ráð til að hvetja starfsfólk til dáða fyrir síðustu spretti ársins Að yfirstíga eitthvað rosalega vandræðalegt atvik Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Ný tækifæri: Til dæmis skór úr endurunnu sjávarplasti Að lifa af hræðilega þynnku í vinnunni Sjá meira