Áströlum ekki skylt að bólusetja sig gegn COVID-19 Andri Eysteinsson skrifar 19. ágúst 2020 17:49 Scott Morrison forsætisráðherra Ástralíu. Vísir/AP
Til að fyrirbyggja misskilning hafa áströlsk stjórnvöld greint frá því að íbúum landsins verði ekki skylt að láta bólusetja sig gegn COVID-19 þegar þar að kemur. Forsætisráðherra landsins, Scott Morrison hafði gefið slíkt í skyn þegar hann greindi frá samningi ástralskra stjórnvalda við lyfjafyrirtækið AstraZeneca. Bóluefnið sem um ræðir er þróað af AstraZeneca og vísindamönnum við Oxford háskóla og er eitt þeirra fimm bóluefna sem talin eru líkleg til þess að ná inn á framhaldsstig klínískra rannsókna á virkni þess. Morrison hafði sagt að ef bóluefnið myndi reynast árangursríkt myndu Ástralir framleiða það sjálfir og dreifa til allra 25 milljón íbúa landsins þeim að kostnaðarlausu. Sagði ráðherrann þá í útvarpsviðtali að enn væri verið að skapa stefnu landsins í þessum málum en að eingöngu yrði heimilt að sleppa bólusetningu vegna heilsufarsvandamála. Nú hefur Morrison dregið þau ummæli til baka og segir að ekki verði skylt að gangast undir bólusetningu í landinu. BBC hefur þá eftir heilbrigðisráðherrann Greg Hunt að ekki sé hægt að útiloka að öllum þeim sem koma til landsins verði gert skylt að bólusetja sig sé það vilji sérfræðinga. Myndi það fyrirkomulag eiga við um ferðamenn og Ástrali á heimleið.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ástralía Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fleiri fréttir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni Sjá meira