Styður Repúblikana með tugum milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 13. október 2026 22:56 Donald Trump heiðraði Elon Musk á dögunum, auk annarra forsvarsmanna tæknifyrirtækja, fyrir störf þeirra í þágu vísinda. Musk er lang stærsti bakhjarl Repúblikanaflokksins á þessu ári. AP/Julia Demaree Nikhinson Forsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður hafa gefið Repúblikönum um 44,7 milljarða króna fyrir kosningarnar í næsta mánuði.
Umræddir frambjóðendur eru þau Thomas H. Kean Jr. og Miller-Meeks en þau sitja bæði í fulltrúadeildinni fyrir kjósendur í New Jersy annars vegar og Iowa hins vegar. Samkvæmt heimildum New York Times benda innri kannanir Repúblikanaflokksins til þess að þau séu ólíkleg til að halda sætum sínum. Því munu aðgerðanefndirnar ekki fjármagna lengur auglýsingar fyrir þessa frambjóðendur. Ákvarðanirnar þykja til marks um að forsvarsmenn þessara aðgerðanefnda sjái betri tækifæri annars staðar til að reyna að halda meirihluta í fulltrúadeildinni, eða í það minnsta draga úr stærð meirihluta Demókrataflokksins. Eiga mun meiri peninga en Demókratar Kannanir benda til þess að Demókratar gætu komið verulega vel út úr kosningunum. Þeir þykja líklegir til að ná meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og eiga einnig séns á að ná tökum á öldungadeildinni. Nokkuð minni líkur eru þó á því, miðað við kannanir. Donald Trump mælist gífurlega óvinsæll. Hækkandi verðlag og óvinsældir stríðsins gegn Íran virðast einnig ætla að koma verulega niður á Repúblikönum. Áhyggjur Repúblikana hafa að miklu leyti snúist um að kjósendur flokksins hafi lítinn áhuga á að mæta á kjörstað og á það sérstaklega við um unga menn. JD Vance, varaforseti, hefur tekið að sér að reyna að fá þá til að mæta. Sjá einnig: Vance biðlar til ungra reiðra manna Það er þó á einu sviði sem Repúblikanar hafa forskot á Demókrata og það er á peningasviðinu. Repúblikanar hafa safnað mun meiri peningum en Demókratar, heilt yfir, þótt ýmsir stakir frambjóðendur Demókrataflokksins hafi safnað miklum peningum. Búinn að gefa tugi milljarða Af þeim sem hafa lagt Repúblikönum til peninga stendur enginn framar en Elon Musk. Hann er eini billjónamæringur heimsins (í dölum talið) og auðugasti maður heims. Musk hefur gefið rúmlega 276 milljónir dala til frambjóðenda Repúblikanaflokksins í aðdraganda þingkosninganna í næsta mánuði eða frá því í byrjun júlí. Í krónum samsvarar það um 33,7 milljörðum króna. AP-fréttaveitan segir að um 158 milljónir dala hafi farið til pólitískrar aðgerðanefndar (PAC) Repúblikana í öldungadeildinni sem kallast Senate Leadership Fund. Þetta ku vera eitt heimsins mesta framlag í stjórnmálasögu Bandaríkjanna. Hann setti 76 milljónir dala í America PAC, sem er hans eigin aðgerðanefnd. Meðal annars hafa þessir peningar verið notaðir til að hvetja kjósendur Repúblikanaflokksins til að mæta á kjörstað, eins og Musk varði fúlgum fjár í fyrir forsetakosningarnar 2024. Sjá einnig: Sigurvegarar í keppni Musks ekki valdir af handahófi Þá gaf Musk tíu milljónir dala til Lone Star Liberty, sem er aðgerðanefnd sem styður Ken Paxton, frambjóðanda Repúblikanaflokksins til annars öldungadeildarsætis Texas. Báðir flokkar hafa dælt miklum peningum í þessa kosningabaráttu en hún er ein þeirra sem skipta sköpum fyrir Demókrata, eigi þeir að ná meirihluta í öldungadeildinni. Eins og áður segir hefur Musk varið 276 milljónum dala í kosningabaráttuna frá því í júlí. Frá forsetakosningunum í lok árs 2024 hefur Musk í heildina gefið Repúblikönum alls 366 milljónir dala, samkvæmt grein New York Times. 366 milljónir dala samsvara um 44,7 milljörðum króna. Það er mun meira en hann gerði fyrir forsetakosningarnar síðustu en þá gaf Musk Trump og Repúblikönum alls um 290 milljónir dala. „Ég held ég sé búinn að gera nóg“ Eftir að hann lagði Repúblikönum gífurlega mikið til í forsetakosningunum 2024 og studdi Trump í að verða aftur forseti, tók Musk að sér það hlutverk að skera niður hjá hinu opinbera í Bandaríkjunum. Var stofnað sérstakt embætti sem kallaðist DOGE sem hann átti að nota til þess. Þessi vinna Musks var verulega óvinsæl meðal Bandaríkjamanna og virðist litlum árangri hafa skilað í formi niðurskurðar. Þá leiddu störfin til mótmæla gegn honum og Tesla, bílafyrirtæki hans, og hafði hið pólitíska andrúmsloft kringum hann mikil áhrif á rekstur Tesla víða um heim. Sjá einnig: Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Í kjölfarið lýsti Musk því yfir opinberlega að hann ætlaði að draga úr fjárútlátum til stjórnmálamanna og vegna málefna sem honum eru hugfangin. „Ég held ég sé búinn að gera nóg.“ Musk tók þó fram að honum gæti snúist hugur og virðist hafa farið svo, ef marka má þessi gífurlega miklu framlög á undanförnum mánuðum. Seinna árið 2025 hóf Musk að deila mjög við Trump en síðan þá hafa þeir bætt sambandið aftur.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Elon Musk Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Sjá meira