Bílar

Tesla Model Y er fljótari en Tesla gaf út

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þetta eintak af Tesla Model Y var milljónasti bíll úr framleiðslu Tesla.
Þetta eintak af Tesla Model Y var milljónasti bíll úr framleiðslu Tesla. Vísir/Elon Musk Twitter
Samkvæmt Tesla er nýjasta afurð framleiðandans, Model Y 3,5 sekúndur úr kyrrstöðu upp í 100 km/klst.

Brooks Weisblat hjá DragTimes fékk sitt eintak af Model Y og fór að prófa bílinn. Hann komst úr 0 í 100 km/klst. á 3,4 sekúndum.

Hér má sjá myndband af athæfinu.

Þá prófaði Weisblat einnig fjórðung úr mílu og hálfa mílu. Þar var Model Y 11,96 sekúndur og 19,07 sekúndur. Þetta er hraði sem allir miðstórir jepplingar mega vera stoltir af. Þetta eru tímar sem náðust á lokuðum vegum. Það er líklegt að bíllinn verði enn fljótari á braut ef þegar hann verður settur á braut.


Tengdar fréttir

Tesla: Íslendingar eru ólmir í umhverfisvænni samgöngumáta

Telsa hóf nýverið að afhenda fyrstu bílana á Íslandi sem keyptir eru í gegnum umboðið sem opnaði seint á síðasta ári. Að sögn Even Sandvold Roland, samskiptafulltrúa Tesla í Noregi hefur Tesla fundið fyrir umtalsverðan áhuga á bílunum sínum hérlendis.

Tesla hefur framleitt milljón bíla

Elon Musk, framkvæmdastjóri Tesla sagði á Twitter á dögunum að Tesla hefði framleitt sinn milljónasta bíl. Það var þessi rauða Model Y bifreið sem sjá má á myndinni hér að ofan.






×