„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar segir nær enga erlenda ferðamenn vilja leiga sér rafbíl og segist ekki skilja hvaðan umhverfisráðherra fái þær tölur sem hann nefnir um fjárstuðning til bílaleiga í nafni loftlagsmála. Hann segist sakna samráðs við bílaleigur, það strandi ekki á þeim að bregðast við en reksturinn þurfi að standa undir sér. Innlent 22.9.2026 17:39
Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Loftslagsráðherra segir bílaleigur landsins annað hvort geta verið í fararbroddi eða dragbítur á orkuskiptum í samgöngum. Ef þær haldi áfram að bjóða aðallega jarðefnaeldsneytisbíla sé það ákvörðun um að íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna. Viðskipti innlent 22.9.2026 11:49
Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir stuttan gjaldfrjálsan tíma í brottfararrennu Isavia við Keflavíkurflugvöll og hátt refsigjald vera ósanngirni og okur. Félagið kallar hana „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana. Neytendur 22.9.2026 07:15
Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Samstarf 16.9.2026 11:15
Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson ehf. eftir að seljendurnir töldu það fyrirsjáanlegt að Samkeppniseftirlitið myndi ekki samþykkja samrunann. Viðskipti innlent 15. september 2026 21:15
Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Þriðjungur Reykvíkinga sem aka til vinnu vill skipta um ferðamáta og til að mynda nýta sér almenningssamgöngur og hjólreiðar samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknarverkefni Reykjavíkurborgar. Að auki kemur þar fram að yfir 90 prósent svarenda flokki reglulega úrgang en flokkunarvenjur ráðist fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu. Innlent 13. september 2026 21:13
Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Fjölbreytt sýning á nýjum Toyota-bílum verður hjá viðurkenndum söluaðilum um land allt laugardaginn 12. september. Samstarf 10. september 2026 08:32
Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Splunkunýr Nissan LEAF er kominn á göturnar. Straumlínulagaður crossover með meira en 620 kílómetra drægni. Hann er gjörbreyttur frá fyrri útgáfum, svakalega töff og með honum ætlar Nissan að stimpla sig rækilega inn í rafbílaslaginn, aftur, eftir að hafa hafið rafbílabyltinguna á sínum tíma. Samstarf 9. september 2026 09:28
Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða Dregið verður úr framlögum til Loftslags- og orkusjóðs um 3,2 milljarða króna á næsta ári ef fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar verður samþykkt óbreytt. Niðurskurðurinn nemur ríflega helmingi þeirra rafbílastyrkja sem sjóðurinn útdeildi í fyrra. Innlent 7. september 2026 13:24
Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. Innlent 7. september 2026 10:15
Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti Hopp-deilibíl eftirför frá Lágmúla að Víðidal í dag. Ökumaður Hopp-bílsins er talinn hafa verið undir áhrifum en hann ók utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvö lögreglubíla á för sinni. Hann er sagður hafa ekið á allt að 140 kílómetra hraða. Innlent 6. september 2026 13:04
Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Bílaumboðið Brimborg hyggst hætta að selja bíla af tegundunum Citroën og Opel og þess í stað leggja áherslu á sölu á bílategundinni Peugeot frá sama framleiðanda. Vöruframboð á Peugeot verður þannig breikkað. Viðskipti innlent 2. september 2026 09:00
Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Allir sem tóku eldsneyti fyrir miðnætti í gær borguðu lægra verð en þeir sem biðu með að dæla þar til í dag eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi. Um tíma leit út eins og Olís hefði þjófstartað í hækkununum í Mosfellsbæ en um var að ræða bilun í kerfi og allir greiddu rétt verð. Framkvæmdastjórinn gagnrýnir hve stuttan tíma olíufélögin fá til að bregðast við meiriháttar breytingum stjórnvalda. Neytendur 1. september 2026 11:20
Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Eldur kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut við Arnarnesveg nú á níunda tímanum í morgun. Slökkvilið er komið á vettvang. Innlent 1. september 2026 08:55
Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Tvö mismunandi atvik þar sem keyrt var utan í ökutæki og stungið af hafa átt sér stað fyrir utan sama húsið í Vestmannaeyjum en lögregla þar óskar eftir vitnum. Í bæði skiptin, sem voru í ágústmánuði, varð utaníkeyrslan til þess að hliðarspegill brotnaði af. Innlent 30. ágúst 2026 16:32
Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Það kannast líklega flestir bíleigendur við að þurfa eitthvað í bílinn en hafa litla hugmynd um hvað það heitir, hvaða gerð passar eða jafnvel hvar eigi að byrja að leita. Samstarf 28. ágúst 2026 13:51
Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Einn vinsælasti rafbíll heims snýr aftur í glæsilegri nýrri útgáfu sem byggir á yfir 15 ára reynslu Nissan af rafbílum. Frumsýning verður á laugardaginn 29. ágúst, milli kl. 12 og 16 hjá BL, Sævarhöfða 2. Samstarf 27. ágúst 2026 08:03
Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Yfirvöld í Kína hafa gert bílaframleiðendum að innkalla um 4,3 milljónir rafmagnsbíla þar í landi vegna innfelldra hurðahúna. Þeir hafa verið bannaðir í Kína en eftir að hurðahúnarnir hafa verið bendlaðir við dauðsföll í tveimur slysum í Kína hefur aukinn þrýstingur verið settur á forsvarsmenn bílafyrirtækjanna um að bæta hönnun bílanna og þá sérstaklega hurðahúnanna. Viðskipti erlent 24. ágúst 2026 08:55
Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa féllst á kröfu bílakaupanda um riftun á kaupum á bílnum vegna bilana á bílnum sem komu upp þremur dögum eftir kaup. Kaupandi krafðist fullrar endurgreiðslu kaupverðs og alls útlagðs kostnaðar vegna viðgerða auk riftunar kaupanna. Seljandi taldi sig ekki ábyrgan fyrir bilunum sem fram komu eftir kaupin. Neytendur 22. ágúst 2026 10:21
Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum „Mér hefur þótt það vanta í umræðu um loftslagsmál í hvað peningarnir fara og að það sé svona sannfæring hjá skattgreiðendum um að það sé verið að beina þeim í ábatasöm verkefni. Ég get bara fullyrt það að hjá Loftslags- og orkusjóði þá tókst það á árinu 2025.“ Innlent 7. ágúst 2026 08:00
Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir bílastæðafyrirtæki sum „síbrotafyrirtæki“. Þó svo að hann sé ánægður með nýlega sekt Neytendastofu telur hann þurfa að stíga fastar niður. Það eigi að vera skýrt hver kostnaður er við að leggja á bílastæði áður en fólk leggur. Rætt var við Breka í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Neytendur 6. ágúst 2026 08:43
Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendastofa hefur sektað bílastæðafyrirtækin Parka Lausnir ehf. og EasyPark Ísland ehf. um hundruð þúsunda fyrir að tilgreina ekki kostnað á gjaldsvæðum nægilega vel. Neytendur 4. ágúst 2026 13:01
Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Verulega harður árekstur þriggja bíla varð á sjötta tímanum í dag þegar ökumaður ætlaði sér að taka fram úr bílaröð á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast á vegkaflanum en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en tveir af þremur bílum eru óökufærir að sögn lögreglu. Innlent 3. ágúst 2026 17:55
Drægnitölurnar komu út í plús Smárafbíllinn Hyundai Inster er dálítið fyndinn, kubbslegur og stuttur, eins og hann hafi keyrt út úr teiknimynd eða tölvuleik og skoppað út á götu. Pixel ljósin ýta undir tölvuleikjalúkkið og hringlaga dagljósin eru eins og galopin augu. Mér finnst hann varla vera fullorðins bíll svona appelsínugulur og stubbalegur. En, áður en við dæmum hann eftir útlitinu er rétt að líta aðeins yfir ferilskrána. Samstarf 23. júlí 2026 08:00
Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Mennirnir þrír sem voru í bílnum sem valt fram af vegi í Skötufirði á tólfta tímanum í dag eru ekki alvarlega slasaðir. Ökumaður sem átti leið hjá bauð þeim að sitja inni í bíl hjá sér þar til hjálp bærist. Innlent 19. júlí 2026 17:18