457 hestafla tengiltvinn Explorer PHEV Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 24. ágúst 2020 07:00 Ford Explorer PHEV.
Nýr rafmagnaður tengiltvinn Ford Explorer PHEV er kominn til Brimborgar og verður frumsýndur á næstunni. Hann er búinn öflugri tvinnaflrás sem er samsett af 3,0 lítra EcoBoost V6 bensínvél auk rafmótors og 10 gíra sjálfskiptingu og 13,1-kWh rafhlöðu og skilar samanlagt 457 hestöflum og 840 Nm af togi. Explorer er 7 sæta lúxusjeppi sem hentar einstaklega vel í lengri ferðir á fjöll, veiði, skíði eða í önnur ævintýri enda með góða veghæð eða 20cm. og dráttargetu upp á 2.500 kg. En jafnframt er nýi Explorer einstaklega hentugur í borgarakstur á hreinu rafmagni með drægi upp á 42 km og auðvelt og fljótlegt að hlaða bæði heima og í vinnu. Ford Explorer PHEV - innstunga fyrir hleðslusnúru. 7 manna lúxus og 2.274 lítra farangursrými Nýr Ford Explorer PHEV er endurhannaður frá grunni með nýju, útliti sem er kröftugt og vekur athygli annarra vegfarenda. Ford Explorer er rúmgóður og með lúxusrými fyrir 7 manns í þremur sætaröðum og því er nóg pláss fyrir alla og risastórt farangursrými. Þegar aftasta sætaröðin er felld niður þá mælist farangursrýmið 2.274 lítrar. Innra rýmið býður upp á 123 lítra geymslupláss um allan bílinn sem gefur öllum farþegum gott pláss fyrir sig og sína hluti. Þar með eru taldir 12 glasahaldarar. Ríkulegur búnaður Nýr Ford Explorer PHEV kemur í tveimur útgáfum, Platinum og ST-Line útgáfu. Báðar þessar útgáfur eru hlaðnar ríkulegum staðalbúnaði sem er með því flottasta sem er í boði. Sérhvert smáatriði er úthugsað til að tryggja lúxustilfinningu, hvort sem þú ert að aka um í borginni eða í meira krefjandi landslagi. Hann er með 10,1 tommu snertiskjá, nýjustu útgáfuna af SYNC 3, með FordPass Connect tengingu, B & O hljóðkerfi með 14 hátölurum og nudd í framsætum þannig þér líður alltaf vel við aksturinn sem verður því skemmtilegur. Að auki er 360° myndavél með tvískiptum skjá, fjarlægðarstillanlegur hraðastillir, BLIS með aðvörun fyrir hliðarumferð, umferðaskiltalesari og veglínuskynjari, árekstrarvari að framan sem skynjar einnig gangandi og hjólandi vegfarendur til að tryggja öryggi. Ford Explorer PHEV kostar frá 11.990.000 kr.
Vistvænir bílar Mest lesið Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring Innlent Yfir hundrað látnir í Texas Erlent „Þetta er bara hálfkák og ekkert annað“ Innlent Skiltið hluti af stærra vandamáli sem dragi úr lífsgæðum Innlent Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Veður „Kemur ekki til greina að fresta þessu máli“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent