Biður Jón afsökunar Agnar Már Másson skrifar 17. október 2026 22:04 Grímur segir frá þessu í færslu á Facebook. Samsett Mynd Grímur Grímsson, þingmaður VIðreisnar, biður kollega sinn Jón Gnarr afsökunar á „klaufalegum“ svörum sínum í útvarpsþætti í morgun þar sem hann sagði þingnefnd sem Jón færi fyrir ekki hafa fundað mikið að undanförnu. Nefndin hætti störfum í júní.
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undanfarna mánuði og að lítið hefði gerst innan nefndarinnar. „Það hefur verið mjög lítil vinnsla í henni undanfarna mánuði,“ sagði Grímur í Vikulokunum og svaraði aðspurður að þingnefndin hefði ekki fundað undanfarið. Jón svaraði þessu síðar í viðtali á vef Rúv í dag og benti á að nefndin hefði aðeins átt að starfa í eitt ár, stólaskipti í barnamálaráðuneytinu hefðu einnig skapað ákveðna erfiðleika og að lítill áhugi hafi verið á þverpólitísku samstarfi á þeim tíma sem nefndin var skipuð, júní 2025, enda var langri og heitri umræðu um veiðigjöld á þingi þá nýlokið. Jón kallaði þetta persónuárás af hálfu Gríms. Grímur birti í kvöld Facebook-færslu þar sem hann biður Jón afsökunar á svörum sínum og vísar í skýringar hans. „Mér þykir leitt að hafa svarað spurningum um þessa nefnd klaufalega og bið Jón afsökunar á því.“ Ekki hefur náðst í Jón við vinnslu fréttar. Í dag blés Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra á frásögn Jóns sem hafði sagt í Spursmálum á mbl.is að það andaði köldu milli Þorbjargar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar. Tildrög úrsagnar Jóns úr þingflokknum eru enn ekki með öllu skýr en hann hefur meðal annars vísað til þess að málaflokkur barna með fjölþættan vanda hafi ekki fengið eins mikla athygli innan þingflokksins og hann hefði óskað. Þá hefur hann sömuleiðis sagt klíkuskap hafa ríkt innan þingflokksins. Jón sagði í samtali við Vísi á fimmtudag, skömmu eftir að hann sagði sig úr þingflokknum, að upp hefðu komið persónuleg vandamál og áföll innan flokksins sem fólk hefði tekist misjafnlega á við. Á sama tíma er Sigmar Guðmundsson, sem hefur verið þingflokksformaður Viðreisnar síðustu ár, í veikindaleyfi en hann hefur verið fjarverandi frá upphafi þingvetrar. Pawel Bartoszek tók við sem þingflokksformaður fyrr í vikunni.
Viðreisn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Sigmar í veikindaleyfi Varaþingmaður tekur í dag sæti á Alþingi fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. Sigmar hefur verið fjarverandi frá upphafi þingvetrar og er kominn í veikindaleyfi. 21. september 2026 11:46 Pawel tekur við Sigmari sem þingflokksformaður Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis lýsti því yfir áður en hefðbundin dagskrá Alþingis hófst í dag að Viðreisn hefði sent þinginu bréf. Þar kom fram að Pawel Bartoszek væri orðinn þingflokksformaður Viðreisnar. 13. október 2026 14:27 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Biður Jón afsökunar Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Sigmar í veikindaleyfi Varaþingmaður tekur í dag sæti á Alþingi fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. Sigmar hefur verið fjarverandi frá upphafi þingvetrar og er kominn í veikindaleyfi. 21. september 2026 11:46
Pawel tekur við Sigmari sem þingflokksformaður Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis lýsti því yfir áður en hefðbundin dagskrá Alþingis hófst í dag að Viðreisn hefði sent þinginu bréf. Þar kom fram að Pawel Bartoszek væri orðinn þingflokksformaður Viðreisnar. 13. október 2026 14:27