Innlent

Sex greindust með veiruna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Við skimun á Suðurlandsbraut.
Við skimun á Suðurlandsbraut. Vísir/vilhelm

Sex einstaklingar greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Einstaklingarnir greindust á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og af þeim voru fjórir í sóttkví. Á landamærunum greindust þrír farþegar með kórónuveirusmit og beðið er eftir niðurstöðum mótefnamælingar í öllum tilfellum.

Þetta kemur fram í nýjustu tölfræði sem birt hefur verið á covid.is í dag.

Þá eru nú 115 í einangrun en í gær voru þau 114. Enn liggur einn á sjúkrahúsi vegna COVID-19 sýkingar en er ekki á gjörgæslu.

Alls eru 990 einstaklingar í sóttkví og hefur þeim fjölgað um einn síðan í gær. Flesta þeirra má finna á höfuðborgarsvæðinu.

Starfsfólk sýkla- og veirufræðideildarinnar tók í gær 800 sýni og við landamæraskimun voru tekin 1979 sýni. Íslensk erfðagreining tók 71.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er ennþá 19,6 Þá jókst nýgengi landamærasmita úr 11,2 í 11,5.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×