Íslenski boltinn

Leiknir niðurlægði Keflavík

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leiknismenn fagna marki fyrr í sumar.
Leiknismenn fagna marki fyrr í sumar. vísir/skjáskot

Leiknir skellti Keflavík í stórleik 12. umferðar í Lengjudeild karla en lokatölur urðu 5-1 sigur Leiknismanna í kvöld.

Daníel Finns Matthíasson kom Leikni yfir á 28. mínútu og fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Árni Elvar Árnason forystuna.

Vuk Óskar Dimitrijevic kom Leikni í 3-0 en Dagur Ingi Valsson náði að klóra í bakkann fyrir Keflvíkinga fyrir hlé.

Leiknismenn héldu þó uppteknum hætti í síðari hálfleik. Sævar Atli Magnússon skoraði fjórða markið á 56. mínútu og sex mínútum síðar bætti hann við öðru marki. Lokatölur 5-1.

Keflavík er þó áfram á toppnum með 24 stig en Leiknir er í 3. sætinu með 23 stig.

Fram er í 2. sætinu með 24 og ÍBV í því fjórða með 23 en Fram og ÍBV eiga leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×