Tveir handteknir vegna byrgispartísins í Noregi Atli Ísleifsson skrifar 31. ágúst 2020 12:11 Alls voru 27 manns fluttir á sjúkrahús vegna gruns um að hafa orðið fyrir kolmónoxíðeitrun. EPA
Lögregla í Noregi hefur handtekið tvo vegna partís sem haldið var í byrgi í almenningsgarði í höfuðborginni Osló um helgina og varð til þess að á þriðja tug manna var fluttur á sjúkrahús vegna eitrunar. NRK segir frá því að tvímenningarnir hafi verið handteknir fyrir að hafa staðið fyrir partíinu í byrginu án heimildar. Til greina komi að handtaka fleiri segir lögregla í yfirlýsingu. Alls höfðu um tvö hundruð manns safnast saman í yfirgefnu byrgi í hverfinu St. Hanshaugen aðfaranótt sunnudagsins. Varið var að halda upp á afmæli ungmenna, en veisluhöldunum lauk með því að 27 manns voru fluttir á sjúkrahús vegna gruns um að hafa orðið fyrir kolmónoxíðeitrun. Þrír eru enn inniliggjandi á gjörgæslu, en reiknað er með að flestir hinna sem lagðir voru inn muni útskrifast í dag. Dísilvélum hafði verið komið fyrir í byrginu til að knýja tæki og tól til að spila tónlist, en sjúkralið kom að sjö manns meðvitundarlausum á staðnum. Eina leiðin inn og út úr byrginu var gat, um einn metri í þvermál, en brotist hafði verið inn í byrgið sem vanalega er lokað og læst.
Noregur Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira