Bílar

Nýskráningum fólksbíla fækkar um 58% á milli mánaða

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Toyota RAV4.
Toyota RAV4.

Samtals voru nýskráðar 677 fólksbifreiðar í ágúst, þær voru næstum því 1000 fleiri í júlí eða 1606. Apríl og maí eru einu mánuðirnir þar sem færri nýskráningar fólksbifreiða hafa verið, það sem af er ári. Þær voru 451 í apríl og 606 í maí.

Fjöldi nýskráninga í ágúst 2020 eftir tegundum.

Flest nýskráð ökutæki í ágústmánuði voru úr framleiðslu Toyota eða 169 ökutæki, Mercedes-Benz var í öðru sæti með 61 ökutæki og Volkswagen í þriðja með 56 nýskráningar samkvæmt vef Samgöngustofu.

Undirtegundir

Af nýskráðum Toyota bifreiðum voru 80 Rav4 bifreiðar og 30 Yaris bifreiðar. Flestar Mercedes-Benz bifreiðarnar voru af Sprinter gerð eða 21. Því næst af GLC gerð eða sjö. Volkswagen Golf var mest nýskráða Volkswagen tegundin í ágúst, 16 eintök voru nýskráð, þar af tíu hreinir rafbílar.

Orkugjafar

Flestar nýskráningar í ágúst voru á bensín knúnum ökutækjum eða 308, næst flestar á dísil knúnum ökutækjum eða 265 og í þriðja sæti voru bensín tengiltvinn-ökutæki, 146.

Vistvæn ökutæki, það eru ökutæki sem ganga að einhverju leyti fyrir öðru en eingöngu bensíni og dísil voru samtals 375.

Í flokki fólksbifreiða voru heins vegar nýskráðir 181 bensínbíll, 146 bensín tengiltvinnbílar og 132 dísilbílar.






×