Bíó og sjónvarp

Gefa út aðra stiklu úr nýjustu James Bond myndinni vegna seinkunar á frumsýningu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daniela Craig sem Bond í síðasta sinn. 
Daniela Craig sem Bond í síðasta sinn. 

Næsta Bond-mynd, sem verður sú 25. í röðinni, mun bera titilinn No Time to Die. Daniel Craig mun í sjötta sinn fara með hlutverk James Bond en í myndinni verður hann þó sestur í helgan stein. Þetta er í síðasta sinn sem Daniel Craig fer með hlutverk James Bond. Kvikmyndin átti að vera frumsýnd í apríl á þessu ári en vegna útbreiðslu kórónuveirunnar var frumsýningunni frestað fram í nóvember og verður hún heimsfrumsýnd þann 12. nóvember.

Í myndinni verður Bond skyndilega kallaður í verkefni eftir að vinur hans hjá CIA, Felix Leiter, biður hann um aðstoð. Snýr verkefnið að því að bjarga vísindamanni sem var rænt og verður verkefnið mun hættulegra en þótti í fyrstu. Í kjölfarið kemst Bond á snoðir um glæpamenn sem vopnaðir eru hátæknibúnaði.

Leikkonan Lashana Lynch fer með hlutverk útsendara bresku krúnunnar, 007, þar sem Bond sjálfur er ekki starfandi útsendari og hefur fram að verkefninu notið lífsins á Jamaíka. Fleiri leikarar sem koma fram í kvikmyndinni eru: Rami Malek, Ralph Fiennes, Christoph Waltz, Ana de Armas og Naomie Harris.

Bandaríski leikstjórinn Cary Joji Fukunaga leikstýrir kvikmyndinni en hann er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt True Detective þáttum og myndinni Beasts of No Nation. Nú er búið að frumsýna aðra stiklu úr nýjustu Bond-myndinni sem sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.