Skutu einhverfan pilt eftir að móðirin hafði óskað aðstoðar Atli Ísleifsson skrifar 9. september 2020 14:41 Móðir drengsins segist hafa haldið að lögregla myndi beita lágmarksvaldi þegar þeir mættu á staðinn. Getty
Lögreglumenn í Glendale í Utah-ríki í Bandaríkjunum skutu margsinnis þrettán ára, einhverfan pilt eftir að móðir hans hafði hringt í neyðarlínuna og óskað aðstoðar vegna andlegra veikinda piltsins. Í frétt BBC er haft eftir móðurinni, Golda Barton, að ástand piltsins, sem er með Asperger-heilkenni, sé alvarlegt en hann dvelur nú á sjúkrahúsi með skotsár í maga, öxl, þvagblöðru og ökkla. Móðirin segist hafa haldið að lögregla myndi beita lágmarksvaldi þegar þeir mættu á staðinn. Hafi hún greint starfsmanni neyðarlínunnar frá því að flytja þyrfti son sinn á sjúkrahús þar sem hann hafi fundið fyrir miklum aðskilnaðarkvíða eftir að hún hafi snúið aftur til vinnu í fyrsta sinn í um ár. „Ég sagði að hann væri ekki vopnaður, hann væri ekki með neitt, yrði bara reiður og byrji að kalla og öskra,“ segir Barton. „Hann er krakki, sem vill fá athygli og veit ekki hvernig hann á að hafa stjórn á sér.“ Keith Horrocks hjá lögreglunni í Salt Lake City segir að málið sé nú til rannsóknar hjá lögreglu. Hann segir að lögregla hafi verið kölluð út vegna vopnaðs pilts sem sýndi af sér ógnandi tilburði. Horrocks bætti við að pilturinn hefði ekki virst vopnaður þegar lögregla mætti á vettvang. Hafi hann svo verið skotinn þegar hann reyndi að flýja af vettvangi.
Bandaríkin Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira