KA/Þór og Stjarnan mættust í Olís-deild kvenna á Akureyri. Fór það svo að Stjarnan vann sterkan útisigur, 23-21.
Helena Rut Örvarsdóttir var markahæst í liði Stjörnunnar, hún skoraði tíu mörk úr 15 skotum. Sólveig Lára Kjærnested kom næst á eftir henni með fimm mörk í átta skotum og Eva Björk Davíðsdóttir skoraði fjögur mörk úr tíu skotum.
Rut Jónsdóttir skoraði sex mörk og gaf sex stoðsendingar fyrir heimakonur í KA/Þór. Rakel Sara Elvarsdóttir og Martha Hermannsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor fyrir KA/Þór.
Þetta þýðir að Stjarnan er með fullt hús stiga, fjögur stig, eftir tvo leiki, á meðan KA/Þór er með eitt stig.