Bíó og sjónvarp

Hardy sagður líklegastur sem næsti Bond

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Gæti þetta verið næsta andlit James Bond?
Gæti þetta verið næsta andlit James Bond? Max Mumby/Indigo/Getty Images

Enski leikarinn Tom Hardy er á meðal þeirra sem taldir eru líklegir til að hljóta hið eftirsótta hlutskipti að glæða njósnarann James Bond lífi í næstu kvikmynd um kappann. Samlandi hans, Daniel Craig, hefur leikið njósnarann, sem ber kennimerkið 007 hjá bresku leyniþjónustunni, í síðustu fimm myndum um hann.

Það hefur þó ekki verið staðfest að Hardy verði sá sem verður þeirra gæfu aðnjótandi að leika Bond í næstu mynd, en Independent heldur því fram að hann sé líklegastur. Blaðið hefur þó sett fram lista yfir þá leikara sem fjallað hefur verið um að gætu tekið við hlutverkinu eftirsótta.

Auk Hardy eru á listanum þeir James Norton, Sam Heughan, Tom Hiddleston, Richard Madden, Jack Lowden, Michael Fassbender og Idris Elba. Sá síðastnefndi er líklega sá sem hefur vakið hvað mesta athygli í umræðunni um næsta Bond, en Idris Elba er svartur. Hingað til hefur Bond aðeins verið leikinn af hvítum mönnum.

Leikararnir hafa fæstir viljað tjá sig þegar þeir hafa verið inntir eftir því hvort þeir komi til með að verða næstir til að leika njósnarann í þjónustu hennar hátignar. Þá hafa sumir þeirra einfaldlega vísað orðrómum um slíkt á bug.

Hér að neðan má sjá myndir af leikurunum sjö, sem ásamt Hardy hafa verið sterklega orðaðir við hlutverkið stóra.

James Norton.Max Mumby/Indigo/Getty
Sam Heughan.Albert L. Ortega/Getty
Tom Hiddleston.Bruce Glikas/WireImage
Richard Madden.Samir Hussein/WireImage
Jack Lowden.Roberto Ricciuti/Getty Images
Michael Fassbender.Axelle/Bauer-Griffin/FilmMagic
Idris Elba.Dave Benett/Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.