Rúnar á bekknum er Arsenal fór áfram 23. september 2020 20:35 Rúnar Alex í upphituninni í kvöld. vísir/getty Rúnar Alex Rúnarsson var í fyrsta sinn í leikmannahópi Arsenal í kvöld er liðið vann 2-0 sigur á Leicester. Leikurinn var liður í 3. umferð enska deildarbikarsins en einhverjir vonuðust eftir því að Rúnar yrði í markinu í kvöld. Svo var ekki og Bernd Leno stóð vaktina en ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum sem var nokkuð tíðindalítill. Fyrsta mark leiksins kom á 57. mínútu en þá skoraði Christian Fuchs ansi klaufalegt sjálfsmark. Eddie Nketiah bætti við öðru marki í uppbótartíma. Lokatölur 2-0 og Arsenal áfram. Velkominn Alex! #CarabaoCup pic.twitter.com/vTLQrjh7xL— Arsenal (@Arsenal) September 23, 2020 Enski boltinn