„Hægir vindar og bjartviðri á milli lægða með stífum vindi og úrkomu“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. september 2020 07:05 Það verður umhleypingasamt í veðrinu næstu vikuna; hægir vindar og bjartviðri og svo stífir vindar og úrkoma. Vísir/Vilhelm
Það er víða kalt á landinu nú í morgunsárið líkt og oft vill verða eftir bjartar og hægar nætur. Hægviðrið heldur áfram fram eftir degi og verður léttskýjað, þó skýjað með köflum norðaustantil og stöku skúrir sem eru líklegar til þess að falla suðaustanlands, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Seinnipartinn verður svo vaxandi suðaustanátt og þá þykknar upp sunnan- og vestanlands þegar skil nálgast landið. Næstu vikuna verður svp umhleypingasamt: „Í nótt og á morgun verður síðan allhvöss suðaustanátt og rigning með köflum sunna- og vestantil, en þurrt að kalla á Norðausturlandi. Umhleypingasamt verður næstu vikuna, hægir vindar og bjartviðri á milli lægða með stífum vindi og úrkomu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Breytileg átt, 5-10 m/s og víða bjartviðri, en og stöku skúr á Suðausturlandi. Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp eftir hádegi, 10-18 m/s og fer að rigna sunnan- og vestanlands seint í kvöld og nótt, en hægari og þurrt á austanverðu landinu. Hlýnandi veður, hiti 2 til 8 stig í kvöld. Sunnan og suðaustan 10-18 á morgun, hvassast norðvestantil. Rigning, einkum sunnan- og vestantil en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 7 til 12 stig. Á laugardag: Suðlæg átt, 10-18 m/s. Rigning sunnan- og vestantil, en þurrt að mestu um landið norðaustanvert. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast norðanlands. Á sunnudag: Sunnan 10-18 m/s austantil á landinu, hæg breytileg átt á vesturhelmingi landsins, en gengur í norðvestan 8-13 seinnipartinn. Rigning, en lengst af þurrt norðaustanlands. Hiti 4 til 11 stig, svalast á Vestfjörðum. Á mánudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Skúrir um sunnan- og vestanvert landið, en skýjað með köflum og úrkomulítið austantil. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast syðst. Á þriðjudag: Suðlæg átt og skúrir eða rigning með köflum, en skýjað og þurrt um norðaustanvert landið. Hiti 2 til 8 stig. Á miðvikudag: Líkur á hvassri austlægri átt með rigningu um land allt og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Fleiri fréttir Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Sjá meira