Breytilegt veður í vikunni en engin aftök Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. september 2020 07:00 Það er komið haust og þess gætir í veðrinu. Vísir/Vilhelm
Það verða yfirleitt fremur hægir vindar í dag og víða dálitlar skúrir en norðaustan kaldi og slydduél á Ströndum og Vestfjörðum með kvöldinu, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Það er spáð suðlægum áttum á morgun og rigningu á Suðausturlandi, víða annars staðar skúrir en léttir til norðaustanlands. Það sem eftir lifir vikunnar verður breytilegt veður með vætu í flestum landshlutum en engin aftök að því er séð verður, eins og það er orðað í hugleiðingunum. Milt veður að deginum, en sums staðar vægt frost að næturlagi. Veðurhorfur á landinu: Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, en 8-13 með N-ströndinni. Dálitlar skúrir í flestum landshlutum, en norðlægari og slydduél NV til undir kvöld. Suðlæg átt, 3-10 m/s á morgun, en norðaustan 8-13 á Vestfjörðum. Rigning á SA-landi og skúrir V-til, en annars úrkomulítið. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast SA-lands. Á þriðjudag: Norðaustan 13-18 m/s NV til á landinu, en annars austlæg átt, 8-15. Rigning í flestum landshlutum, jafn vel slydda á Vestfjörðum, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 1 til 9 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á miðvikudag: Austlæg eða breytileg átt, 8-15 m/s, en 13-18 á annesjum nyrðra og víða talsverð rigning, en úrkomulítð SV-lands. Snýst í suðvestanátt um kvöldið og rofar til. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á NA-landi. Á fimmtudag: Suðlægar áttir, strekkingur vestast, en annars hægara. Skúrir víða um land, en léttskýjað NA til. Hiti víða 2 til 7 stig. Á föstudag: Útlit fyrir hæga norðlæga átt og víða bjartviðri, en fremur svalt í veðri. Á laugardag og sunnudag: Líklega austanáttir með vætu víða um land og hægt hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Sjá meira