Verðbólga ekki meiri í sextán mánuði Heimir Már Pétursson skrifar 29. september 2020 12:18 Verðbólga mælist nú 3,5 prósent eða prósentustigi hærri en verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Vísir/Vilhelm
Verðbólga mælist nú 3,5 prósent og er yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands þriðja mánuðinn í röð og fer vaxandi. Verðbólgan hefur ekki mælst jafn mikil í sextán mánuði. Markmið Seðlabanka Íslands er að verðbólga sé ekki meiri en 2,5 prósent og það markmið náðist í desember í fyrra þegar hún fór í tvö prósent eftir að hafa verið yfir markmiðinu í um níu mánuði. Verðbólga var síðan undir markmiði bankans allt frá desember fram í maí á þessu ári þegar hún fór í 2,6 prósent og hélst þannig í júní. Peningastefnunefnd kynnir ákvörðun í vaxtamálum á miðvikudag í næstu viku. Hingað til hefur Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri ekki haft miklar áhyggjur af verðbólgunni.Vísir/Vilhelm Verðbólga fór síðan í þrjú prósent í júlí, 3,2 prósent í ágúst og nú í september mælist hún 3,5 prósent og hefur ekki verið meiri síðan í maí í fyrra. Athygli vekur að vísitala neysluverðs hefur hækkað minna síðustu tólf mánuði með húsnæðisliðinn innanborðs eða um 3,5% eins og áður sagði en án hans hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,9%. Það bendir til að þróun húsnæðisverðs hafi dregið úr verðbólgunni undanfarið ár. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er á miðvikudag í næstu viku hinn 7. október.
Efnahagsmál Seðlabankinn Tengdar fréttir Verðbólga eykst enn á milli mánaða Tólf mánaða verðbólga mælist nú 3,5% og eykst um 0,39% á milli mánaða. 29. september 2020 10:23 Stýrivextir haldast óbreyttir Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 1%. 26. ágúst 2020 09:05 Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Samstarf Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Sjá meira
Verðbólga eykst enn á milli mánaða Tólf mánaða verðbólga mælist nú 3,5% og eykst um 0,39% á milli mánaða. 29. september 2020 10:23
Stýrivextir haldast óbreyttir Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 1%. 26. ágúst 2020 09:05