Tónlist

Jónsi og Robyn senda frá sér hið „fullkomna popplag“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Robyn og Jónsi á góðri stundu.
Robyn og Jónsi á góðri stundu. Aðsend mynd

Jónsi og sænska poppstjarnan Robyn sendu í dag frá sér nýtt lag, Salt Licorice. Lagið er af væntanlegri sólóplötu Jónsa, hans fyrstu í áratug. Platan kemur út á vegum Krunk útgáfunnar þann 2.október.

Þurfti ekki að hugsa málið

Í laginu Salt Licorice, eða Saltlakkrís, ferðast þau Jónsi og Robyn um hrjóstrugt tónlistarlandslag undir styrkri upptökustjórn A.G. Cook, stofnanda PC Music og listrænan tónlistarstjóra Charli XCX. Lagið er ögrandi blanda af þungum, drífandi takti og háværum bjölluhljómum sem koma saman í stormsveip af hljóðum.

„Í þessum óði til skandinavíska sársaukans hughreysta Jónsi og Robyn hvort annað í gegnum fortíðarþrá, kulnunina sem fylgir því að eldast og þunglyndi, en áhyggjurnar verða léttbærari þegar þeim er deilt með vini,“ segir um lagið.

„Salt Licorice” er svo sætt og fullkomið popplag,” segir Robyn. „Það fær mig til að dansa á ofsafengin hátt og vilja fara í sleik á sama tíma. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um þegar ég var beðin um að syngja lagið með Jónsa og allir fallegu tölvupóstarnir með þúsund emoji-táknum sem ég fékk frá honum kórónuðu bara samstarfið!”

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Salt Licorice.

Á plötunni Shiver er kafað djúpt ofan í mannlega vitund okkar og tengingu við náttúruna þar sem lífrænn og draumkenndur hljóðheimur Jónsa mætir vélrænni og framúrstefnulegri upptökustjórn A.G. Cook. Með þessu óvenjulega samstarfi heldur Jónsi áfram að þenja út mörk listformsins og skynjunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.