Gylfi Þór lagði upp er Everton komst örugglega áfram 30. september 2020 20:45 Gylfi Þór fagnar með Dominic Calvert-Lewin, sem skoraði þrennu í kvöld, og öðrum leikmönnum Everton. Tony McArdle/Getty Images
Everton vann öruggan 4-1 sigur á West Ham United og er komið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins. Var þetta sjötti sigur liðsins í röð. 6 - Everton have won each of their opening six games of a campaign for the first time since 1938-39. Super. pic.twitter.com/ng9N1iXmVi— OptaJoe (@OptaJoe) September 30, 2020 Everton hefur leikið frábærlega það sem af er leiktíð og það hélt áfram í kvöld. Carlo Ancelotti stillti upp sterku liði í kvöld. James Rodriguez, Richarlison, Dominic Calvert-Lewin og fleiri voru allir í byrjunarliði Everton. Það var þó Gylfi Þór Sigurðsson sem bar fyrirliðabandið en hann lék allan leikinn á miðju Everton. Calvert-Lewin er sjóðandi heitur þessa dagana en hann kom Everton yfir eftir rúmlega tíu mínútna leik og var það eina mark fyrri hálfleiksins. West Ham jafnaði metin nánast um leið og sá síðari hófst. Robert Snodgrass þar að verki. Richarlison kom Everton yfir tíu mínútum síðar. Calvert-Lewin bætti svo við tveimur mörkum undir lok leiks og fullkomnaði þrennu sína. Hann hefur nú skorað tvær þrennur á leiktíðinni og er kominn með átta mörk í fimm leikjum. Gylfi Þór lagði upp síðara markið. Everton er þar með komið í 8-liða úrslit deildarbikarsins ásamt Newcastle United, Tottenham Hotspur, Manchester City og Manchester United.
Enski boltinn Tengdar fréttir Torres með sitt fyrsta mark fyrir City | Newcastle þurfti vítaspyrnukeppni Manchester City og Newcastle United eru komin áfram í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins. 30. september 2020 20:05 Engin dramatík er Man United flaug inn í 8-liða úrslit Manchester United átti ekki í neinum vandræðum með Brighton & Hove Albion í kvöld. Liðið vann 3-0 sigur á útivelli og er komið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins. 30. september 2020 20:35
Torres með sitt fyrsta mark fyrir City | Newcastle þurfti vítaspyrnukeppni Manchester City og Newcastle United eru komin áfram í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins. 30. september 2020 20:05
Engin dramatík er Man United flaug inn í 8-liða úrslit Manchester United átti ekki í neinum vandræðum með Brighton & Hove Albion í kvöld. Liðið vann 3-0 sigur á útivelli og er komið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins. 30. september 2020 20:35