Innlent

Fjarnemendur í hjúkrunarfræði vilja fjarnám í stað verklegs vegna faraldurs

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Hjúkrunarfræðinemar í fjarnámi við Háskólann á Akureyri vilja að verklegt nám fari fram á netinu vegna kórónuveirufaraldursins.
Hjúkrunarfræðinemar í fjarnámi við Háskólann á Akureyri vilja að verklegt nám fari fram á netinu vegna kórónuveirufaraldursins. Visir

Hjúkrunarfræðinemar í fjarnámi við Háskólann á Akureyri hafa óskað eftir að sleppa við verklegt nám við skólann vegna kórónuveirufaraldursins. Skólinn segir slíka viðveru nauðsynlega í ákveðnum áföngum jafnvel þó nemendur komi frá höfuðborgarsvæðinu.

Um 50 nemendur, flestir á höfuðborgarsvæðinu stunda fjarnám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Hluti af náminu er verklegt og fer fram við skólann. Í byrjun þessa mánaðar sendu nemendur á öðru ári bréf til forsvarsfólks hjúkrunarfræðideildar þar sem komu fram áhyggjur þeirra af þróun kórónuveirusmita á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafi starfsfólk sjúkrahússins á Akureyri verið beðið að takmarka samgang við fólk af höfuðborgarsvæðinu vegna smithættu. Nemendur bentu einnig á að þeir væru flestir að vinna með viðkvæmum hópum. Þeir óskuðu þar eftir að verkleg lotann við skólann yrði færð á rafrænt form.

Svar barst frá skólanum þann 5. október þar sem kom m.a. annars fram að verklega lotan yrði haldin 19.-23 og 26.-30. október samkvæmt áætlun nema óvæntar aðstæður kæmu upp. Nemendur yrði kallaðir í verklegt nám sem krefðist viðveru á staðnum. Þá yrðu gerðar ráðstafanir til að takmarka hættu á smiti. Mætingarskylda væri í lotuna.

8. október barst svo annað bréf frá deildinni þar sem kemur aftur fram að skólinn stefni á að halda sig við settar dagsetningar fyrir þá sem hafi möguleika á að koma. Skólinn þurfi að viðhalda alþjóðlegum stöðlum tengt náminu sem þýði að nemendur í hjúkrunarfræði þurfi að klára ákveðna námsþætti til þess að útskrifast. Komist nemendur ekki í þessa lotu muni skólinn bjóða upp á aðrar dagsetningar seinna á misserinu.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hófst verklega námið fyrir staðarnema í þessari viku en hjá nemendum í fjarnámi í næstu viku. Þórólfur Guðnason var spurður út í málið í dag. 

„Við höfum hvatt til þess að höfuðborgarbúar séu ekki að fara að nauðsynjalausu út á land og öfugt.Ég held að fólk verður bara að vega og meta hversu mikil nauðsyn er á þessu, “ sagði Þórólfur Guðnason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×