Ætla sér að leysa ráðgátuna um „ólæsilega hraðskrift“ Astridar Lindgren Atli Ísleifsson skrifar 14. október 2020 12:40 Astrid Lindgren lést árið 2002 en hún var höfundur sagnanna um Emil í Kattholti, Línu Langsokk, Barnanna í Ólátagarði, Bróður míns Ljónshjarta og þannig mætti áfram telja. Myndin er frá 1975. Getty
Hópur bókmenntafræðinga, tölvunarfræðinga og hraðritara í Svíþjóð hefur nú verið falið að ráða í og lesa úr frumhandritum barnabókahöfundarins Astridar Lindgren. Hún notaðist við sérstaka hraðskrift sem enginn annar gat lesið. Lindgren kallaði táknin „krumelunser“. Sænskir fjölmiðlar segja að það verði bókmenntafræðingurinn Malin Nauwerck sem muni leiða starfið. „Það hefur verið sagt í mörg ár að nauðsynlegt sé að ráða í hraðritunarkóða Astridar Lindgren til að mögulegt sé að þróa fræðin í kringum bækur hennar áfram,“ er haft eftir Nauwerck. Til stendur að ráða í um sjö hundruð hraðritunarstílabækur og koma þeim yfir á rafrænt form. Stílabækurnar hafa verið í vörslu Konunglega bókasafnsins í Stokkhólmi um margra áratuga skeið. Nauwerck hyggst leita til hraðritara, sem flestir eru komnir á lífeyrisaldur, til að koma verkinu af stað og svo muni algóriþmar vonandi geta ráðið í skrift Lindgrens. Nauðsynlegt sé að ráðast í verkið nú, á meðan þeir sem hafa reynslu og störfuðu áður sem hraðritarar, eru enn á lífi. Astrid Lindgren lést árið 2002 en hún var höfundur sagnanna um Emil í Kattholti, Línu Langsokk, Barnanna í Ólátagarði, Bróður míns Ljónshjarta og þannig mætti áfram telja.
Svíþjóð Bókmenntir Menning Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira