Óvæntir markaskorarar í endurkomusigri Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2020 19:24 Chelsea menn fagna fjórða marki Timo Werner í dag. Mike Hewitt/Getty Images Þrátt fyrir að hafa lent undir gegn Sheffield United á heimavelli kom Chelsea til baka og vann öruggan 4-1 sigur að endingu. Sigurinn skaut Chelsea í 3. sætið. David McGoldrick kom Sheffield yfir strax á níundu mínútu eftir hornspyrnu en þetta var fyrsta markið sem Edouard Mendy fær á sig í Chelsea markinu frá því hann kom til félagsins. Tammy Abraham jafnaði á 23. mínútu og ellefu mínútum síðar var röðin komin að vinstri bakverðinum Ben Chilwell. Hann skoraði eftir flottan undirbúning Hakim Ziyech en þannig stóðu leikar í hálfleik. Thiago Silva skoraði sitt fyrsta mark fyrir Chelsea á 77. mínútu og aftur var það Ziyech sem var arkitektinn. Timo Werner skoraði svo fjórða markið tíu mínútum fyrir leikslok og lokatölur 4-1. Hakim Ziyech created six chances for Chelsea against Sheffield United, the most any Premier League player has created in a single home game this season.He's here...and he's perfect. pic.twitter.com/E1JPaMdtIa— Squawka Football (@Squawka) November 7, 2020 Chelsea er í 3. sætinu með fimmtán stig en þeir hafa ekki tapað í síðustu sjö leikjum í öllum keppnum. Sheffield United er á botninum með eitt stig Enski boltinn