Stórmeistarajafntefli á Etihad Anton Ingi Leifsson skrifar 8. nóvember 2020 18:25 Það var hart barist í kvöld en liðin skiptu stigunum bróðurlega á milli sín. Clive Brunskill/Getty Images Manchester City og Liverpool gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í stórleik umferðarinnar í enska boltanum. Bæði mörkin, sem og klúðruð vítaspyrna, litu dagsins ljós í fyrri hálfleiknum sem var fjörugur. The points are shared after a pulsating draw#MCILIV pic.twitter.com/iSiTAwLFVd— Premier League (@premierleague) November 8, 2020 Liverpool fékk vítaspyrnu eftir tólf mínútu. Sadio Mane lék þá á Kyle Walker sem gerðist svo brotlegur. Mo Salah steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi framhjá varnarlausum Ederson. Jöfnunarmarkið kom á 31. mínútu. Eftir sendingu Kevin De Bruyne snéri Gabriel Jesus laglega í teignum, framhjá Trent Alexander Arnold, og skoraði með fínu skoti. City fékk svo dauðafæri í að komast fyrir hlé er dæmd var vítaspyrna. Dæmd var hendi á Joel Gomez og eftir skoðun VARsjánnar var það niðurstaðan. Belginn steig sjálfur á punktinn en skaut framhjá. Rólegra var um að lítast í síðari hálfleik en City var meira með boltann og fékk hættulegri færi. Fleiri urðu mörkin ekki og stórmeistarajafntefli niðurstaðan, 1-1. Robert Firmino failed to produce a shot on target for the fourth Premier League game this season... and failed to create a chance for the third match this season.And it's the second time he's produced 0 of both in the same game. pic.twitter.com/9bT0IZWgND— Squawka Football (@Squawka) November 8, 2020 Liverpool er því með sautján þriðja í öðru sætinu, stigi á eftir toppliði Leicester, og með jafn mörg stig og Tottenham sem er einnig í öðru sætinu. Man. City er í ellefta sætinu með tólf stig. Enski boltinn