Fimmtán greindust innanlands Kjartan Kjartansson skrifar 21. nóvember 2020 11:02 Frá sýnatökustað vegna kórónuveirunnar við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Fimmtán manns greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands síðasta sólarhringinn. Þrettán þeirra voru í sóttkví við greiningu samkvæmt nýjustu tölum landlæknis og almannavarna. Af þeim fimmtán sem greindust innanlands í gær greindust átta eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni og sjö greindust í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Nú eru 52 á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu, jafnmargir og í gær. Í gær voru 52 á sjúkrahúsi og þar af þrír á gjörgæslu. Í einangrun eru nú 224 manns en 232 í gær. Þá eru 217 í sóttkví í dag en 318 í gær. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 45,8 en var 48,5 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 11,2 en var 10,6 í gær. Á landamærunum greindist einn með virkt smit við skimun. Annar greindist með virkt smit við aðra skimun eftir komu til landsins. Beðið er niðurstaðna úr mótefnamælingu í einu tilfelli. Núverandi bylgja faraldursins hefur verið í rénun undanfarna daga. Mest greindust ellefu manns smitaðir á miðvikudag. Aðra daga vikunnar var fjöldinn undir tíu, fjórir þegar minnst lét á miðvikudag. Nú hafa 5.269 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 26 nú látnir. Fréttin verður uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Innlent Evran, Icelandair, brottfararstöð og Bubbi á Sprengisandi Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent Fleiri fréttir Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Evran, Icelandair, brottfararstöð og Bubbi á Sprengisandi „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Sjá meira