„Margar ákvarðanir þríeykisins sem maður skilur ekki“ Arnar Geir Halldórsson skrifar 29. nóvember 2020 19:00 Arnar Daði Arnarsson. Stöð 2/Skjáskot Arnar Daði Arnarsson er á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari í efstu deild en hann þjálfar handboltalið Gróttu sem hefur lítið fengið að spreyta sig á leiktíðinni vegna kórónuveirufaraldursins.
Þetta var ekki frumraunin sem Arnar Daði bjóst við en Grótta hafði aðeins leikið fjóra leiki í Olís-deildinni þegar íþróttahúsum landsins var skellt í lás í haust. Guðjón Guðmundsson, Gaupi, ræddi við Arnar Daða í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. „Maður bjóst alls ekki við þessu. Þetta er hundleiðinlegt. Maður er búinn að bíða eftir því að þjálfa í efstu deild lengi og svo var þessu kippt frá manni sisvona,“ segir Arnar Daði sem á bágt með að skilja þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í hér á landi vegna faraldursins. „Það er mikil pólitík í þessu. Margar ákvarðanir sem hafa verið teknar af þessu svokallaða þríeyki sem maður bara skilur ekki,“ segir Arnar Daði. Bendir Arnar á, máli sínu til stuðnings, að fyrir fimm vikum hafi fullorðnir mátt æfa en ekki börn og nú fái börn að æfa en ekki fullorðnir. Arnar kallar eftir svörum. „Það er enginn sem getur svarað þessu (innsk.blaðamanns: hvað framtíðin ber í skauti sér). Það veit enginn svarið. Svörin sem maður fær, bæði frá sambandinu og þessu þríeyki, eru engin. Maður vill fá svör frá sambandinu hvað þeir ætla að gera. Á að spila úrslitakeppnina? Á að klára bikarinn eða verður mótið stytt?“ Viðtal Gaupa við Arnar Daða í heild má sjá hér neðst í fréttinni. Klippa: Sportpakkinn: Arnar Daði
Olís-deild karla Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira