Bíó og sjónvarp

Netflix segir nei við ráðherra og bróður Díönu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjórða þáttaröðin var frumsýnd á Netflix 15. nóvember síðastliðinn.
Fjórða þáttaröðin var frumsýnd á Netflix 15. nóvember síðastliðinn. Getty/NurPhoto

Netflix hefur engin áform um að bæta við fyrirvara á sjónvarpsseríunni The Crown þar sem fram komi að dramatíska þáttaröðin um bresku konungsfjölskylduna sé skáldskapur. AP greinir frá.

Í yfirlýsingu frá Netflix segir að fyrirtækið hafi ávallt sagt að um leikrit væri að ræða og það sett fram sem slíkt.

„Við erum þess fullviss að notendur okkar skilji að um skáldskap sé að ræða en byggður í víðum skilningi á sögulegum atburðum,“ segir í yfirlýsingu Netflix.

„Í því ljósi höfum við engin áform og sjáum enga ástæðu til að bæta við fyrirvara fyrir þættina.“

Oliver Dowden menningarmálaráðherra Breta hvatti Netflix til að bæta fyrirvara við þættina nú þegar fjórða þáttaröð The Crown er að fara í sýningu. Með fyrirvara er átt við texta sem birtist á skjánum áður en þátturinn hefst.

Fyrsta þáttaröð The Crown fór í sýningar árið 2016 en þar var farið yfir líf Elísabetar annarrar Englandsdrottningar sem tók við krúnunni árið 1952. Fáar athugasemdir voru gerðar við fyrstu þrjár þáttaraðirnar.

Í fjórðu þáttaröðinni er níundi áratugurinn runninn upp og áhugaverðar persónur á borð við Margréti Thatcher fyrrverandi forsætisráðherra og Díönu prinsessu komnar fram á sjónarsviðið. Gagnrýnisraddir hafa heyrst um að farið sé frjálslega með staðreyndir í umfjöllun um konurnar tvær.

Charles Spencer, bróðir Díönu, kallaði eftir því að Netflix bætti við fyrirvara.

„Ég held að það myndi virkilega hjálpa The Crown ef fyrirvari væri birtur fyrir hvern þátt þar sem kæmi fram: „Þetta er ekki satt en sumir atburðir eru sannir“,“ sagði Spencer við ITV. Hann óttast að fólk taki því sem sönnum hlut sem fram komi í þáttunum.


Tengdar fréttir

Hofsá líklega skosk og íslenska fjallasýnin stafræn

Atriði í Netflix-þáttaröðinni The Crown, sem sýna Karl Bretaprins í veiðiferð í Hofsá í Vopnafirði, er ekki tekið upp við ána – og að öllum líkindum ekki einu sinni tekið upp á Íslandi, að sögn framkvæmdastjóra veiðiklúbbsins sem rekur Hofsá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.