Hannes segir tilfinningarnar blendnar Anton Ingi Leifsson skrifar 8. desember 2020 13:22 Úr leik Vals og Stjörnunnar á tímabilinu. Til hægri er formaður KKÍ. vísir/vilhelm Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, vill sjá unglinga sem og tvær efstu deildir bæði karla og kvennamegin fá leyfi til þess að æfa körfubolta.
Hannes segir að tilfinningarnar tengdar fréttunum um að bara leikmenn í efstu deildum körfuboltans fái að æfa séu blendnar. Æfingabanni á Íslandi, sem hefur verið í gildi síðan í byrjun október, hefur nú verið aflétt fyrir það íþróttafólk sem leikur í efstu deildum. Þetta staðfesti Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra í dag. Tíðindi.Posted by Sportið á Vísi on Þriðjudagur, 8. desember 2020 Því fær körfuboltafólk í efstu deildum karla og kvenna að æfa en ekki annað körfuboltafólk á meistaraflokksstigi. „Í rauninni í dag ætla ég að segja sem minnst í dag. Þetta eru blendnar tilfinningar,“ sagði Hannes í samtali við Vísi er hann var spurður út í fréttir dagsins. „Það er númer eitt, tvö og þrjú að við fáum að æfa í efstu tveimur deildum karla og kvenna. Samkvæmt regluverki KKÍ og FIBA hanga þessar deildir saman, Domino’s deildirnar og fyrstu deildir karla og kvenna.“ „Ég hef enn trú á því að þessar deildir fái að æfa. Það skiptir ofboðslegu miklu máli. Það er nógu slæmt að önnur deildin og niður fái ekki að æfa. Við skiljum það en það skiptir meginmáli að þessar deildir fái að æfa. Við erum búin að vera vinna í því síðustu daga og munum gera það áfram.“ Hannes segir einnig að KKÍ krefjist þess að unglingar, fæddir 2004 og eldri, fái að æfa - sama hvort að lið þeirra sé í efstu deild eða ekki. „Æfingar unglinga, fæddir 2004, 2003 og 2002, verða að komast í gang. Þessir ungu krakkar verða að fá að æfa, óháð því í hvaða deild liðin eru. Þau verða að fá að komast í íþróttahús.“ Hannes bætti því einnig við að nú væri útilokað að hefja mótahald í byrjun janúar. Stefnan væri nú að hefja mótahaldið um miðjan janúar.
Íslenski körfuboltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira