Bjarki Már kennir fólki að vippa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. febrúar 2021 17:00 Bjarki Már Elísson vippar yfir samherja sinn hjá Lemgo, Peter Johannesson. facebook-síða þýsku úrvalsdeildarinnar Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, veit sannarlega hvað hann syngur þegar kemur að því að skora mörk. Hann miðlar af þekkingu sinni í því að klára færin sín úr horninu í myndbandi sem birtist á Facebook-síðu þýsku úrvalsdeildarinnar.
Í myndbandinu fer Bjarki yfir það hvernig á að fara inn úr horninu og vippa yfir markvörðinn. Landsliðsmaðurinn fer yfir öll atriðin, allt frá því hvernig á að stökkva inn og beita skothöndinni. Eftir sýnikennsluna frá Bjarka, sem má sjá hér fyrir neðan, ættu handboltaiðkendur, ungir sem aldnir, að vera fróðari um þá list að skora úr horninu með því að vippa yfir markvörðinn. Bjarki leikur með Lemgo og skrifaði nýverið undir nýjan samning við félagið sem gildir til júníloka 2022. Bjarki gekk í raðir Lemgo frá Füchse Berlin sumarið 2019. Hann varð markahæstur í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili með 216 mörk í 27 leikjum, eða átta mörk að meðaltali í leik. Hann er fjórði markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar um þessar mundir með 112 mörk. Félagi hans í íslenska landsliðinu, Viggó Kristjánsson, er markahæstur með 130 mörk. Bjarki hefur á ferli sínum einnig orðið markakóngur efstu deildar á Íslandi og B-deildarinnar í Þýskalandi. Bjarki skoraði 38 mörk á HM í Egyptalandi og var markahæsti leikmaður Íslands á mótinu.
Þýski handboltinn Mest lesið Býður sig óvænt fram til forseta fyrst kvenna Sport Sungu UEFA Mafia og Breiðablik fékk 1,4 milljóna króna sekt Fótbolti Dortmund biðst afsökunar á að hafa gert grín að stamandi áhrifavaldi Fótbolti Littler laug því að hann væri hættur Sport Sjáðu glæsimark Rashford gegn Newcastle og öll hin Fótbolti Sveindís áberandi í nótt en sofnar í bíó Fótbolti „Hugsa að hann eigi alveg inni einhverja sentímetra, jafnvel tíu“ Sport Segir að United hafi keypt rangan markvörð: „Aldrei heyrt um hann“ Enski boltinn Man. Utd fær tvo til baka: Amorim grínaðist með fundinn með Ratcliffe Enski boltinn Óttast að Amorim verði rekinn ef illa fer gegn Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Sjá meira