Tiger Woods þakklátur fyrir allar rauðu skyrturnar og svörtu buxurnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2021 09:31 Tommy Fleetwood og Cameron Champ spiluðu báðir í rauðu og svörtu á lokadeginum. AP/Phelan M. Ebenhack Það fór ekki framhjá Tiger Woods að fjöldi kylfinga klæddust rauðri skyrtu og svörtum buxum honum til stuðnings á lokadegi PGA og LPGA golfmóta um helgina.
Tiger þakkaði fyrir sig með stuttri færslu á Twitter en hann er nú að jafna sig eftir bílslysið sem hann lenti í fyrir viku síðan. Eitt af einkennismerkjum Tiger Woods er að klæðast rauðu og svört og lokadegi móta og það mátti sjá fjölda kylfinga bjóða upp á þá litasamsetningu. Tiger hefur unnið fimmtán risamót á ferlinum og er mikil fyrirmyndi hjá yngri kylfingum á mótaröðinni. Tiger Woods was touched as players wore reds shirts and black pants to honor him on Sunday pic.twitter.com/472xdUPqnF— SportsCenter (@SportsCenter) March 1, 2021 „Það er erfitt að lýsa því hversu það snerti mig mikið að kveikja á sjónvarpinu í dag og sjá allar rauðu skyrturnar. Ég vil segja við alla kylfinga og alla aðdáendur mína að þið eruð svo sannarlega að hjálpa mér í gegnum þennan erfiða tíma,“ skrifaði Tiger Woods. Rory McIlroy, Tommy Fleetwood, Patrick Reed og Tony Finau voru meðal þeirra sem klæddust litum Tigers en það gerði líka Phil Mickelson á PGA Tour Champions viðburði í Arizona sem og Annika Sorenstam á LPGA's Gainbridge mótinu á kvennamótaröðinni, hennar fyrsta LPGA-móti í tólf ár. PGA players show support for Tiger Woods by wearing his iconic red and black in final round https://t.co/bPeSRkBuIp— The Washington Post (@washingtonpost) February 28, 2021 „Þetta er bara merki um það að við vildum láta hann vita af því að við erum að hugsa um hann og viljum hvetja hann áfram. Þetta lítur aðeins betur út núna en á þriðjudaginn en hann á lang leið fyrir höndum,“ sagði Rory McIlroy. „Ef það væri enginn Tiger Woods þá held ég að mótaröðin og öll golfíþróttin væri á verri stað en hún er í dag. Hann skipti okkur miklu máli og gerir það ennþá,“ sagði McIlroy. It s a @TigerWoods Sunday for the maintenance staff at the @PuertoRicoOpen . @PGATOUR pic.twitter.com/OheyF4o1N8— PGA TOUR Communications (@PGATOURComms) February 28, 2021 Tiger Woods þarf að fara í gengum langa endurhæfingu til að ná sér góðum af fótbrotunum á hægri fæti og óvíst er hvort hann keppi einhvern tímann aftur. Það var samt gott hljóð í honum samkvæmt upplýsingum erlendra miðla en hann er nú kominn á nýtt sjúkrahús í Los Angeles. Tiger var að reyna að ná sér góðum eftir uppskurð á baki þegar hann lenti í slysinu og hafði stefnt á það að ná Mastersmótinu í apríl. Ekkert verður að því.
Golf Bílslys Tigers Woods Mest lesið Hollywood-endir þegar Forest féll úr bikarnum Enski boltinn „Læt þá stundum heyra það að þeir geti ekki unnið án mín“ Sport Orri sá sigurmark á síðustu sekúndu Fótbolti Solskjær hittir forráðamenn Man. Utd Enski boltinn Ríkjandi meistarar Frakka bíða strákanna okkar Handbolti Heimamenn slógu Mbeumo og félaga út Fótbolti Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Íslenski boltinn Ísabella aftur heim frá sænska stórveldinu Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Slóvenía 32-26 | Frábær fyrri hálfleikur gegn Slóvenum Handbolti Kom á óvart að Hilmar væri á lausu: „Settum upp liðið í kringum hann“ Körfubolti Fleiri fréttir Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Vilja fá fimmtugan Tiger á gamlingjatúrinn Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Guðrún Brá og Gunnlaugur Árni slógu best í ár Hættur aðeins þrítugur Guðrún Brá tveimur höggum frá því að öðlast fullan keppnisrétt á LET Mótið hálfnað og Guðrún Brá enn í góðri stöðu Guðrún Brá efst eftir fyrsta hring í Marokkó Íslensku stelpurnar misstu einn keppnisdag vegna eldingarhættu Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Sjá meira