Golf

Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour

Aron Guðmundsson skrifar
Sigurður Arnar átti draumahöggið á úrtökimótinu í dag
Sigurður Arnar átti draumahöggið á úrtökimótinu í dag golf.is / Seth@golf.is

Íslenski kylfingurinn Sigurður Arnar Garðarsson átti draumahögg á fyrsta hring sínum á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi þegar hann fór holu í höggi á 17. holu vallarins. 

Sigurður er einn átta Ís­lendinga sem berjast um sæti á Evrópumótaröðinni, DP World Tour. Þessa dagana fer fram úrtökumót á fyrsta stigi í Þýska­landi. Komast þarf í gegnum þrjú stig til þess að öðlast þátt­tökurétt á DP World Tour.

Draumahögg Sigurðar á 17. holunni sló hann með níu járni, 151 metra. Hola í höggi.

Sigurður fór þennan fyrsta hring sinn á úrtökumótinu á einu höggi undir pari, alls 71 höggi og er hann sem stendur jafn í nítjánda sæti. 

Sigurður eftir draumahöggiðSigurður á Instagram

Alls spila 82 kylfingar á mótinu í Þýskalandi og má ætla að rúmlega fimmtungur þeirra fari áfram á annað stig.

Aron Snær Júlíusson er efstu Íslendinganna eftir fyrsta hringinn í áttunda sæti. Aron Snær fór fyrsta hring sinn á þremur höggum undir pari, 69 höggum.

Ríkjandi Íslandsmeistari síðustu tveggja ára, Dagbjartur Sigurbrandsson er einnig í fínum málum á sama skori og Sigurður, einu höggi undir pari og jafn í nítjánda sæti. 

Jóhann Frank Halldórsson fór fyrsta hringinn á pari og er jafn í 35. sæti. Ragnar Garðarson er á einu höggi yfir pari og jafn í 46. sæti.

Logi Sigurðsson er á tveimur höggum yfir pari og jafn í 53. sæti. Tómas Eiríksson Hjaltested er á þremur höggum yfir pari og jafn í 62. sæti og þá er Hlynur Bergsson jafn í 67. sæti á fjórum höggum yfir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×