Toppliðið afgreiddi Fulham í upphafi síðari hálfleiks Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. mars 2021 21:50 Agüero skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni í tæpa 14 mánuði í kvöld. EPA-EFE/Adam Davy Það vakti athygli að hvorki Kevin De Bruyne né İlkay Gündoğan voru í byrjunarliði Manchester City í kvöld. Ekki nóg með heldur voru Raheem Sterling, Phil Foden og Riyad Mahrez allir einnig á bekknum. Það virtist hafa áhrif á City-liðið því eins og áður sagði var staðan markalaus í hálfleik. Pep Guardiola var þó ekkert að stressa sig og beið með skiptingar fram í síðari hálfleik. Það borgaði sig heldur betur því John Stones kom City yfir strax í upphafi síðari hálfleiks eftir sendingu João Cancelo. Gabriel Jesus skoraði skömmu síðar eftir skelfileg mistök í öftustu línu hjá Fulham og þegar aðeins fimmtán mínútur voru liðnar af síðari hálfleik fengu gestirnir vítaspyrnu. Á punktinn steig Argentínumaður að nafni Sergio Agüero og skoraði hann af öryggi. Hans fyrsta mark í úrvalsdeildinni síðan í janúar 2020. Staðan orðin 3-0 og enn hálftími eftir. Sergio Aguero scores his first Premier League goal since January 2020.10 years, 181 goals and counting pic.twitter.com/kFv44HhbFU— B/R Football (@brfootball) March 13, 2021 Gestirnir slökuðu á klónni eftir það og sigldu þægilegum 3-0 sigir í hús. Manchester City er sem fyrr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, nú með 71 stig eða 17 stigum meira en Manchester United sem á þó tvo leiki til góða. Fulham er í bullandi fallbaráttu í 18. sæti með 26 stig, líkt og Brighton & Hove Albion sem er þó með betri markatölu. Enski boltinn Fótbolti