Mbl segir frá þessu og segir að leikmenn beggja liða þurfi að fara í sóttkví. Samkvæmt upplýsingum Vísis hafa leikmenn Stjörnunnar þó ekki verið skikkaðir í eiginlega sóttkví en þeim tilmælum beint til þeirra frá sóttvarnateyminu að fara varlega.
Liðin mættust í átta liða úrslitum Lengjubikarsins á Samsung-vellinum í Garðabæ á laugardaginn. Lauk leiknum með 4-2 sigri Stjörnunnar.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var spurður út í málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Það gæti alveg verið í tengslum við smit hérna um helgina – já það gæti alveg verið,“ sagði Þórólfur.
Hann segir að nokkrir hefðu greinst innanlands um helgina en endanleg tala lægi ekki fyrir. Ekki hefðu allir verið í sóttkví og smitin tengjast ekki öll. Það sé því greinilegt að það sé eitthvað innanlandssmit í gangi sem sé að koma fram.
Stjarnan vann leikinn sem fyrr segir 4-2 og mætir Val í undanúrslitunum 1. apríl næstkomandi eða eftir tíu daga.
Hilmar Árni Halldórsson, Þorsteinn Már Ragnarsson, Brynjar Gauti Guðjónsson og Kári Pétursson skoruðu mörk Stjörnunnar í leiknum en þeir Þórður Gunnar Hafþórsson og Arnór Borg Guðjohnsen höfðu komið Fylki í 2-0 í fyrri hálfleiknum.
Fréttin hefur verið uppfærð.