Sviðum fækkað og nýir starfsmenn ráðnir Atli Ísleifsson skrifar 13. apríl 2021 10:10 Ída Margrét Jósepsdóttir, Jóhanna Klara Stefánsdóttir, Lilja Björk Guðmundsdóttir og Sigríður Mogensen. SI Nýtt svið iðnaðar og hugverka hefur verið sett á laggirnar hjá Samtökum iðnaðarins en með skipulagsbreytingunum hefur sviðum verið fækkað úr þremur í tvö.Nýtt svið iðnaðar og hugverka hefur verið sett á laggirnar hjá Samtökum iðnaðarins en með skipulagsbreytingunum hefur sviðum verið fækkað úr þremur í tvö.
Í tilkynningu frá SI segir að sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs sé Sigríður Mogensen en undir sviðið heyri fyrirtæki í greinum iðnaðar, meðal annars í framleiðslu-, matvæla-, hátækni- og hugverkaiðnaði. Þá segir að orkusækinn iðnaður heyri einnig undir nýja sviðið. Mannvirkjasvið er áfram starfrækt í óbreyttri mynd en undir það heyra fyrirtæki í bygginga- og mannvirkjaiðnaði. Sviðsstjóri mannvirkjasviðs er Jóhanna Klara Stefánsdóttir. „Þá hafa tveir nýir starfsmenn verið ráðnir til samtakanna sem hafa þegar hafið störf. Lilja Björk Guðmundsdóttir er nýr viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði og Ída Margrét Jósepsdóttir er aðstoðarmaður framkvæmdastjóra. Lilja Björk er með BA og ML í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í evrópskum stjórnskipunarrétti frá Háskólanum í Granada auk þess sem hún hefur málflutningsréttindi fyrir Héraðsdómi. Hún starfaði síðast hjá Rauða krossinum sem lögfræðingur og teymisstjóri í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Ída Margrét er með BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands. Hún kemur frá J.P. Morgan í London þar sem hún starfaði sem sérfræðingur í alþjóðlegu verkefnastjórnunarteymi og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra. Áður starfaði hún sem aðstoðarmaður stjórnarformanns Kaupþings banka,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Mest lesið Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti erlent „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ Atvinnulíf Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti erlent Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Viðskipti innlent Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Sjá meira
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent