Navalní var hnepptur í fangelsi í febrúar en hann hóf hungurverkfall fyrir um þremur vikum til þess að krefjast viðunandi læknismeðferðar vegna mikilla bakverkja og doða í fótleggjum. Læknar hans vísa til niðurstaðna úr skoðun á Navalní sem var gerð á þriðjudag sem þeir fengu að sjá.
„Ef hungurverkfallið heldu áfram í jafnvel aðeins smá stund í viðbót höfum við einfaldlega engan til að annast um bráðum, því miður,“ segja læknarnir fimm, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.
Læknarnir hafa ekki fengið að hitta Navalní til þessa. Fangelsisyfirvöld hafa ekki brugðist við áliti þeirra til þessa. Þegar Navalní var fluttur á sjúkrahús í vikunni lýstu þau heilsu Navalní sem „viðunandi“.
Þúsundir kröfðust þess að Navalní yrði látinn laus á mótmælum sem stuðningsmenn hans skipulögðu víðsvegar um Rússland á miðvikudag. Rússneska lögreglan handtók fleiri en þúsund þeirra en stjórnvöld í Kreml umbera takmarkað andóf og höfðu lýst mótmælin ólögleg áður en þau fóru fram.
Navalní var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í febrúar vegna þess að rússneskur dómstóll taldi hann hafa brotið gegn reynslulausn vegna fjársvikadóms sem hann hlaut árið 2014. Þann dóm hefur Mannréttindadómstóll Evrópu kallað gerræðislegan og óréttlátan.
Rússneski dómstóllinn taldi að Navalní hefði brotið gegn skilyrðum reynslulausnarinnar þegar hann gaf sig ekki fram við yfirvöld á meðan hann lá í dái á þýsku sjúkrahúsi eftir að eitrað var fyrir honum með taugaeitri í Rússlandi í fyrra. Navalní hefur sakað Vladímír Pútín forseta um að hafa skipað fyrir um tilræðið en því hafa stjórnvöld í Kreml neitað.
Sama taugaeitur var byrlað Sergei Skrípal, rússneskum fyrrverandi njósnara, í bænum Salisbury á Englandi árið 2018. Talið er að tveir útsendarar rússnesku leyniþjónustunnar hafi staðið að verki og álykta vestrænar leyniþjónustustofnanir að það hafi þeir gert að undirlagi Pútín sjálfs. Skrípal og dóttir hans lifðu tilræðið af en ensk kona lést síðar eftir að hún komst í snertingu við leifar eitursins sem tilræðismennirnir skildu eftir.