Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar mætast í kvöld í Domino´s deild kvenna í körfubolta þegar Valskonur taka á móti Skallagrími á Hlíðarenda. Valur varð Íslandsmeisatari vorið 2019 og Skallagrímur vann bikarinn í febrúar 2020. Ekkert lið hefur unnið þessa tvo titla síðan.
Valsmenn ætla að bjóða upp á leikinn í beinni útsendingu á Valur TV en stóra fréttin er hverjir ætla að lýsa þessum mikilvæga leik í kvöld.
Valur er í baráttu við Keflavík og Hauka um deildarmeistaratitilinn en Skallagrímur verður að vinna ætli liðið sér að eiga enn möguleika á því að komast í úrslitakeppnina.
Lýsendurnir á Valur TV í kvöld eru þau Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Helga Vala Helgadóttir, alþingiskona.
Valsmenn segja frá þessu á miðlum sínum og þar kemur fram að þau Helga Vala og Ásmundur Einar munu án efa koma með skemmtilega og jafnvel "aðra" sýn á körfuboltann eins og þeim einum er lagið.
Ásmundur Einar Daðason er mikill stuðningsmaður Skallagríms en Helga Vala Helgadóttir er móðir hinnar efnilegu landsliðskonu Ástu Júlíu Grímsdóttur hjá Val.
Ásta Júlía hefur farið á kostum eftir að deildina fór af stað á ný eftir kórónuveirustopp og er hún með 14 stig og 12 fráköst að meðaltali í síðustu tveimur leikjum Valsliðsins.