Útskúfunin hættulegri þessum einstaklingum en fitan Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 29. apríl 2021 08:30 Erna Kristín Stefánsdóttir gaf út bókina Fullkomlega ófullkomin og barnabókina Ég vel mig. Youtube „Ég er komin á þann stað, að ef þú ætlar ekki að fræða þig og ef þú ætlar ekki að gera betur, nennirðu að sleppa því að tala. Bara plís,“ segir Erna Kristín Stefánsdóttir um fitufordóma. „
Hvort sem þér líkar það betur eða verr, þá ertu að beita ofbeldi. Meðvitað eða ekki, ertu að beita ofbeldi.“ Erna er guðfræðingur, samfélagsmiðlastjarna, höfundur tveggja bóka og mikil talskona líkamsvirðingar. Hún er gestur í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Eigin konur og hvetur þar fólk til að fræða sig um fitufordóma og gera betur. Grannir óheilbrigðir líkamar samþykktir „Hvað varðar óheilbrigði hjá feitu fólki, þá er jaðarsetning, niðurlæging, útskúfun, skert heilbrigðiskerfi miklu meiri ástæða fyrir óheilbrigði en nokkurn tíman fitan. Pælið bara aðeins í því.“ Hún segir að á hverjum degi sé fólk beitt ofbeldi fyrir útlitið og verði fyrir aðkasti. „Maður skilur ógeðslega vel þetta fólk sem velur að fara í fitusog eða annars konar inngrip út af því að það fær ekki að lifa fyrr en það verður samþykkt. Það fær að lifa í grönnum og óheilbrigðum líkama, mjög friðsælu lífi. En ekki feitum og heilbrigðum.“ View this post on Instagram A post shared by (@ernuland) Með sjálfsvígshugsanir út af jaðarsetningu „Samfélagið er hannað gegn þessu fólki,“ útskýrir Erna í þættinum. „Ef þú ætlar ekki að leyfa fólki að vera óheilbrigt og hamingjusamt, óháð stærð, skammastu þín. Það er ekki þitt. Á meðan við leyfum fólki að fá rými til að fagna sér, er ekki líklegra að það vilji leita í almennt heilbrigði?“ Í þættinum fjalla þær meðal annars um fitufordóma sem oft eru settir í búning umhyggju, mýtur um feitt fólk og heilbrigði, líkamsímynd og hvernig samfélagið kenni okkur að líta á fitu sem óvin. „Ég er að horfa á fólk sem ég elska í niðurbroti allan daginn alla daga út af því að fólk eins og við erum að drulla upp bak, við erum bara að ýta þeim út á jaðarinn. Fólk er komið með sjálfsvígshugsanir og við höfum áhyggjur af því að þau séu að fara að deyja út af fitu. Þau eru að deyja út af okkur. Við erum ástæðan.“ Erna gagnrýnir meðal annars það viðmót sem feitir einstaklingar fái innan heilbrigðiskerfisins. Þær tala einnig um ummæli Everts eiganda CrossFit Reykjavík í þættinum 24/7 með Begga Ólafs, en viðtalið vakti mikla athygli hér á Vísi. Þátturinn er aðgengilegur á Spotify og öðrum helstu efnisveitum og má einnig sjá hann í spilaranum hér fyrir neðan. Líkamsvirðing í kennsluskrá Erna Kristín hefur í nógu að snúast þessa dagana en hún er að undirbúa fyrirlestur sem verður frítt með frjálsum framlögum. Fyrirlesturinn verður nánar auglýstur á hennar samfélagsmiðlum, Erna Kristín á Instagram og Ernuland á Facebook. Erna Kristín hefur flakkað á milli hópa og skóla á öllu landinu til að fræða einstaklinga á öllum aldri um jákvæða líkamsímynd. Hún hefur nú einnig farið lengra með málið og sent bréf á Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra. Í samtali við Vísi segir Erna að hún bíði eftir svari en bréfið fjallaði um þá hugmynd að fá jákvæða líkamsímynd og líkamsvirðingu inn í menntakerfið.
Heilbrigðismál Samfélagsmiðlar Geðheilbrigði Tengdar fréttir Tara Margrét svarar Evert: „Algengasta réttlætingin fyrir fitufordómum“ Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, félagsráðgjafi og formaður Samtaka um líkamsvirðingu, segir Evert Víglundsson einkaþjálfara sekan um að halda á lofti „algengustu réttlætingunni fyrir fitufordómum í nútíma samfélagi.“ 14. apríl 2021 21:55 „Ég er með fitufordóma“ „Ég er alveg viss um það að fyrr en síðar þá verði sykur hreinlega bara bannaður,“ segir Crossfit þjálfarinn Evert Víglundsson. 14. apríl 2021 14:00 „Málefnið skiptir meira máli og ég er ekki yfir gagnrýni hafin“ „Helsti misskilningurinn er þó sá að margir halda að með jákvæðri líkamsímynd leiti fólk í óheilbrigði. Það er ekki rétt en gott er að muna að heilbrigði annara kemur okkur almennt ekkert við,“ segir Erna Kristín Stefánsdóttir rithöfundur, fyrirlesari og aðgerðarsinni í viðtali við Vísi. 13. mars 2021 07:00 „Var eiginlega með neikvæða líkamsímynd frá því að ég uppgötvaði að ég væri með líkama“ Erna Kristín Stefánsdóttir er guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna sem hefur vakið mikla athygli fyrir skrif sín um líkamsímynd, Erna er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar og fer Erna Kristín yfir sögu sína í þættinum. 9. mars 2021 11:30 Mest lesið RÚV hættir við Söngvakeppnina Lífið „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Tónlist Magnús Eiríksson er látinn Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, EM í handbolta og Alvotech Lífið Kynntist ástinni á Spáni eftir að hafa verið orðin leið á að vera ein Lífið Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Lífið Plötuverslun sniðgengur Björk og tekur tónlist hennar úr hillum Lífið Golfkúlan hafnaði í höfði forsætisráðherra Lífið Gagnrýni ársins 2025: Jólahelvíti, ómerkilegir þættir og vonbrigði á stóra sviðinu Gagnrýni Hverjum var boðið á Bessastaði og hverjum ekki? Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, EM í handbolta og Alvotech RÚV hættir við Söngvakeppnina Magnús Eiríksson er látinn Kynntist ástinni á Spáni eftir að hafa verið orðin leið á að vera ein Enn óvíst hvað verður um Söngvakeppnina Eyjamenn dansa með tröllum um helgina „eins og alvöru sértrúarsöfnuður“ Býðst að bóka leikara til að þykjast vera maki Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Þórunn Antonía frumsýnir nýtt útlit Eyjólfur og Suzanne eignuðust stúlku Móðguð fyrir hönd ferðaþjónustunnar Skotin ganga á víxl um „eitraðan mömmuhóp“ Snorri Másson leggi hornin á hilluna Tónlistarpar fékk draumaprins í síðbúna jólagjöf Sonurinn kominn með nafn Plötuverslun sniðgengur Björk og tekur tónlist hennar úr hillum Hverjum var boðið á Bessastaði og hverjum ekki? Allt að 450 þúsund bíógestir á einu ári Gugga fer yfir eineltið, frægðina og eftirpartýið með Drake Smurði kúk um allt stofugólfið þar til hann kafnaði úti í horni Hvað vildu Íslendingar vita á árinu 2025? Olli sjálfum sér vonbrigðum í sturtunni Skautasvell á Stokkseyri slær í gegn Kallar Sóla klónabarnið sitt Mótmælir söfnuninni: „Ég myndi frekar stinga byssu upp í rassgatið á mér“ Uppáhaldsatriðin að mati höfunda Skaupsins Golfkúlan hafnaði í höfði forsætisráðherra Barnabarn Íþróttaálfsins á leiðinni Íslenski Johnny Cash á rúntinum með Bítinu Scary Movie-stjarna látin Sjá meira
Tara Margrét svarar Evert: „Algengasta réttlætingin fyrir fitufordómum“ Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, félagsráðgjafi og formaður Samtaka um líkamsvirðingu, segir Evert Víglundsson einkaþjálfara sekan um að halda á lofti „algengustu réttlætingunni fyrir fitufordómum í nútíma samfélagi.“ 14. apríl 2021 21:55
„Ég er með fitufordóma“ „Ég er alveg viss um það að fyrr en síðar þá verði sykur hreinlega bara bannaður,“ segir Crossfit þjálfarinn Evert Víglundsson. 14. apríl 2021 14:00
„Málefnið skiptir meira máli og ég er ekki yfir gagnrýni hafin“ „Helsti misskilningurinn er þó sá að margir halda að með jákvæðri líkamsímynd leiti fólk í óheilbrigði. Það er ekki rétt en gott er að muna að heilbrigði annara kemur okkur almennt ekkert við,“ segir Erna Kristín Stefánsdóttir rithöfundur, fyrirlesari og aðgerðarsinni í viðtali við Vísi. 13. mars 2021 07:00
„Var eiginlega með neikvæða líkamsímynd frá því að ég uppgötvaði að ég væri með líkama“ Erna Kristín Stefánsdóttir er guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna sem hefur vakið mikla athygli fyrir skrif sín um líkamsímynd, Erna er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar og fer Erna Kristín yfir sögu sína í þættinum. 9. mars 2021 11:30