West Ham þremur stigum frá Meistaradeildarsæti Anton Ingi Leifsson skrifar 3. maí 2021 21:06 Antonio afgreiddi Burnley í kvöld. Jon Super/Getty Images West Ham vann góðan 2-1 útisigur á Burnley er liðin mættust í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Það voru heimamenn í Burnley sem komust yfir er Chris Wood skoraði úr vítaspyrnu á nítjándu mínútu. Tveimur mínútum síðar hafði Michail Antonio jafnað metin og á 29. mínútu var Antonio búinn að koma þeim í 2-1. From being 1-0 down, West Ham are 2-1 up at half-time against Burnley.All thanks to a Michail Antonio double. #HateWontWin— BBC Sport (@BBCSport) May 3, 2021 Antonio hefur verið heitur á tímabilinu en hann reyndist hetjan í leiknum því fleiri uru mörkin ekki. West Ham er í fimmta sætinu með 58 stig, þremur stigum frá Chelsea í fjórða sætinu, en Burnley er í 16. sætinu. Jóhann Berg Guðmundsson spilaði síðasta stundarfjórðunginn fyrir Burnley eftir að hafa byrjað á bekknum. Enski boltinn