Enski boltinn

Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jermaine Pennant í leik með Stoke.
Jermaine Pennant í leik með Stoke. Nordic Photos / Getty Images

Jermaine Pennant, fyrrverandi leikmaður í ensku úrvalsdeildinni, segir að sauma hafi þurft yfir 50 spor eftir að hundur réðst á hann.

Hinn 43 ára gamli Pennant var á göngu með hundana sína tvo í norðurhluta London í síðustu viku þegar þýskur fjárhundur réðst á hann.

Fyrrverandi kantmaður Liverpool og Stoke City sagði að hundurinn hefði bitið sig fastan í fótlegg hans og neitað að sleppa á meðan hann reyndi að verja eigin hund, King.

King skarst þá í leikinn og hjálpaði til við að hrekja árásarhundinn burt og kom þannig í veg fyrir „það sem hefði getað orðið skelfilegt ástand“, sagði Pennant í færslu á Instagram.

Pennant sagði við the Sun, að sauma hefði þurft yfir 50 spor í hægri fótlegg hans eftir að hann hlaut fjögur bitsár í árásinni og fékk aðhlynningu á sjúkrahúsi.

Hann bætti við að King hefði sloppið ómeiddur en greindi ekki frá því hvað varð um hundinn sem réðist á hann. Pennant sagðist hafa ákveðið að tilkynna árásina ekki til lögreglu.

„Sem sagt, þýskur fjárhundur réðst á mig, ég reyndi að verja King en hundurinn náði taki á fætinum á mér, ég lá á jörðinni með hundinn enn fastan við mig og hann sýndi engin merki um að ætla að sleppa, þangað til King skarst í leikinn, því hann vissi ekki hvað var í gangi,“ sagði Pennant.

„En um leið og hann gerði það hrakti hann hundinn burt og bjargaði mér frá því sem hefði getað orðið skelfilegt ástand.

„King slapp ómeiddur fyrir utan smá glefs í fótinn, en hann var alþakinn blóði sem var ekki mitt. Á þessum tímapunkti gleymdi ég kvölunum sem ég var í og hjartað sökk, en blóðið var ekki úr King.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×