Fjögur markalaus jafntefli í fjórum leikjum hjá United og Villarreal Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. maí 2021 16:31 Meira að segja Cristiano Ronaldo mistókst að skora gegn Villarreal þegar liðið mætti Manchester United fjórum sinnum á árunum 2005-08. getty/David Ashdown Manchester United og Villarreal mætast í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Gdansk í Póllandi síðar í þessum mánuði. Þetta verður fimmti leikur liðanna í Evrópukeppnum en fjórir fyrstu leikirnir enduðu með markalausu jafntefli. United og Villarreal voru saman í riðli í Meistaradeild Evrópu tímabilin 2005-06 og 2008-09. Liðin gerðu markalaust jafntefli í báðum leikjunum 2005-06. Jafnteflin gerðu meira fyrir Villarreal sem vann riðilinn. United lenti hins vegar í neðsta sæti hans og sat eftir með sárt ennið. Villarreal fór alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar þetta tímabil en tapaði þar fyrir Arsenal. United og Villarreal tókst heldur ekki að skora gegn hvort öðru í riðlakeppninni 2008-09. Þau komust þó bæði áfram og United fór alla leið í úrslit þar sem liðið laut í lægra haldi fyrir Barcelona. United og Villarreal mætast nú í fimmta sinn í Evrópukeppnum í Gdansk 26. maí og fá þá tækifæri til að gera eitthvað sem þeim hefur ekki enn tekist gegn hvort öðru; að skora. United tapaði fyrir Roma, 3-2, í gær en komst áfram, 8-5 samanlagt. Á meðan gerði Villarreal markalaust jafntefli við Arsenal á Emirates en fór áfram, 2-1 samanlagt.
Þetta verður fimmti leikur liðanna í Evrópukeppnum en fjórir fyrstu leikirnir enduðu með markalausu jafntefli. United og Villarreal voru saman í riðli í Meistaradeild Evrópu tímabilin 2005-06 og 2008-09. Liðin gerðu markalaust jafntefli í báðum leikjunum 2005-06. Jafnteflin gerðu meira fyrir Villarreal sem vann riðilinn. United lenti hins vegar í neðsta sæti hans og sat eftir með sárt ennið. Villarreal fór alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar þetta tímabil en tapaði þar fyrir Arsenal. United og Villarreal tókst heldur ekki að skora gegn hvort öðru í riðlakeppninni 2008-09. Þau komust þó bæði áfram og United fór alla leið í úrslit þar sem liðið laut í lægra haldi fyrir Barcelona. United og Villarreal mætast nú í fimmta sinn í Evrópukeppnum í Gdansk 26. maí og fá þá tækifæri til að gera eitthvað sem þeim hefur ekki enn tekist gegn hvort öðru; að skora. United tapaði fyrir Roma, 3-2, í gær en komst áfram, 8-5 samanlagt. Á meðan gerði Villarreal markalaust jafntefli við Arsenal á Emirates en fór áfram, 2-1 samanlagt. Evrópudeild UEFA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Evrópudeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Evrópudeild UEFA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Evrópudeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Sjá meira