Jónas segist hafa gerst skólabókardæmi um meðvirkni.
Í kjölfar yfirlýsinga og viðtals Sölva við sjálfan sig skrifaði Jónas að það væri ömurleg tilhugsun að þurfa að svara ámóta sturluðum ásökunum. Hann sagði þær rugl og lygi.
„Allt varðandi kjaftasögu sem er tóm lygi - sturluð ásökun um að maður sé siðblindur kynferðisofbeldismaður,“ kallaði Jónas sögurnar í athugasemd á Facebook, sem hefur verið tekin út.
Jónas segist hafa gert „mikil mistök í geðshræringi“ vegna ásakana á hendur manni sem hann þekkir vel. Þar með hafi hann fallið á prófinu.
„Eins og fjölskylda mín og vinir vita þá er ég ófullkominn og mennskur og er að vinna með það á hverjum degi. Þetta er rosaleg lexía fyrir mig að hafa gert þetta eins og ég hata ofbeldi mikið og óska þess svo mikið að við gætum upprætt þessa meinsemd úr samfélaginu okkar,“ skrifar Jónas.
„Eitt get ég sagt að þetta er lexía fyrir lífið og ég ætla að gera betur. Vá hvað ég ætla að gera betur.“
Ein kona hefur kært Sölva Tryggvason til lögreglu vegna líkamsárásar í marsmánuði á þessu ári og önnur kona hefur óskað eftir skýrslutöku vegna kynferðisbrots sem hún kveðst hafa orðið fyrir af hendi Sölva í júní 2020.
Jónas Sig var gestur Sölva í hlaðvarpi hans í haust.