Dagurinn byrjaði á viðureign PSG Talon og RNG. Þessi lið mættust seinast í gær og þá varð PSG Talon fyrsta liðið til að leggja RNG af velli á MSI 2021.
Leikurinn sveiflaðist fram og til baka, en PSG Talon virtust þó hafa yfirhöndina framan af. Eftir rúmlega hálftíma leik snéru kínversku meistararnir í RNG leiknum þó sér í hag og eftir það var ekki aftur snúið. Þetta var sjötti sigur RNG í milliriðlinum, en þeir höfðu þegar tryggt sig í undanúrslitin í gær.
.@RNGRoyal win the rematch against @PSG_Talon! #MSI2021 pic.twitter.com/1kLjZOMIcp
— LoL Esports (@lolesports) May 17, 2021
MAD Lions og DWG KIA mættust í öðrum leik dagsins. Kóresku heimsmeistararnir tóku afgerandi forystu snemma leiks og sigur þeirra aldrei í hættu. Með sigrinum var það ljóst að DWG KIA er komið í undanúrslit MSI ásamt RNG. Það eru því bara tvö sæti laus fyrir lokadaginn.
Í þriðja leik dagsins mættust Cloud9 og RNG í leik sem að Cloud9 þurfti á sigri að halda til að eiga enn góðan möguleika á því að stela sæti í undanúrslitum.
Cloud9 mættu virkilega ákveðnir til leiks og voru alltaf skrefinu á undan í annars mjög jöfnum leik. Þeir héldu forskotinu út leikinn og unnu að lokum virkilega mikilvægan sigur eftir um hálftíma leik.
STILL ALIVE. #MSI2021 pic.twitter.com/YgMsCtY0xL
— LoL Esports (@lolesports) May 17, 2021
Pentanet.GG og MAD Lions áttust við í fjórða, og jafnframt mest einhliða leik dagsins. MAD Lions hlupu hringi í kringum Pentanet.GG og eftir 24 mínútur af League of Legends var öruggur sigur þeirra í höfn.
Næst seinasti leikur dagsins var viðureign PSG Talon og DWG KIA þar sem þeir síðarnefndu gátu með sigri endað daginn í efsta sæti riðilsins.
PSG Talon hefur sýnt það á þessu móti að þeir geta dansað við risana. DWG KIA gaf þeim hinsvegar engin færi á sér og unnu sannfærandi sigur og tylltu sér á toppinn.
Lokaleikur dagsins var svo viðureign Pentanet.GG og Cloud9. Pentanet.GG áttu eins og áður segir engann möguleika á því að komast áfram, og eftir frækinn sigur Cloud9 gegn RNG fyrr í dag þurftu þeir svo sannarlega á auðveldum leik að halda til að setja alvöru pressu á liðin fyrir ofan sig um að eiga möguleika á sæti í undanúrslitum.
Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu tíu mínúturnar, en eftir það fóru Pentanet.GG að síga fram úr. Flestir héldu að Cloud9 myndi ná að brúa bilið, og þeir voru oft á tíðum ansi nálægt því, en þegar tæpar 25 mínútur voru liðnar af leiknum náði Pentanet.GG afgerandi forystu.
Þeir nýttu sér þann mun og kláruðu leikinn stuttu seinna. Þetta var fyrsti sigur Pentanet.GG í milliriðlinum, en tapið gerir það nánast ómögulegt fyrir Cloud9 að ná inn í undanúrslitin. Draumurinn er þó ekki alveg úti, en þeir þurfa á kraftaverki að halda á lokadegi milliriðilsins á morgun.
let that be a lesson to everyone; nobody beats pentanet 8 times in a row pic.twitter.com/c54sdnuOv5
— LoL Esports (@lolesports) May 17, 2021
Lokadagur milliriðilsins fer fram á morgun og verður hægt að fylgjast með honum á Stöð 2 eSport frá klukkan 12:30. Stöðu riðilsins fyrir lokadaginn má sjá hér að neðan.
The #MSI2021 Rumble Stage Standings after Day 4! pic.twitter.com/UGpM8hvEu4
— LoL Esports (@lolesports) May 17, 2021