Íslenski boltinn

Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópa­vogi og glæsi­mark Sveins

Sindri Sverrisson skrifar
Það sauð upp úr undir lok leiks í Kópavogi og tveir voru reknir af velli. Nikolaj Hansen slapp þó með gult spjald.
Það sauð upp úr undir lok leiks í Kópavogi og tveir voru reknir af velli. Nikolaj Hansen slapp þó með gult spjald. Skjáskot/Sýn Sport

Rauða spjaldið fór fjórum sinnum á loft og Sveinn Margeir Hauksson skoraði glæsilegt sigurmark í svakalegum slag á Kópavogsvelli þegar Víkingar unnu fjendur sína í Breiðabliki, 2-1, í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Lætin og mörkin má sjá á Vísi sem og það helsta úr 3-1 sigri ÍBV gegn FH.

Blikinn Anton Logi Lúðvíksson og þjálfari hans Ólafur Ingi Skúlason fengu báðir rautt spjald í fyrri hálfleiknum í Kópavogi í kvöld. Anton braut af sér eftir mistök við vítateig Blika en Ólafur Ingi var rekinn af velli fyrir kjaftbrúk.

Undir lok leiksins fór rauða spjaldið aftur á loft eftir að allt sauð upp úr. Daníel Hafsteinsson og Ásgeir Helgi Orrason voru þá reknir af velli og Nikolaj Hansen fékk gult spjald fyrir sinn þátt í átökunum sem sjá má hér að neðan.

Víkingar fögnuðu að lokum 2-1 sigri með sigurmarki Sveins Margeirs Haukssonar beint úr aukaspyrnu eftir að Daníel hafði jafnað metin. Jónatan Guðni Arnarsson hafði komið Blikum yfir.

Í Vestmannaeyjum fór rauða spjaldið einnig á loft en þá bara einu sinni. Eyjamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson fékk þá tvö gul spjöld á sömu sekúndunni, í fyrri hálfleik, en manni færri landaði ÍBV 3-1 sigri gegn FH.

Omar Sowe, Viggó Valgeirsson og Arnór Ingi Kristinsson skoruðu mörk ÍBV en Kjartan Kári Halldórsson mark FH beint úr aukaspyrnu.

Mörkin í Eyjum má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×