Starir taka við Bíldsfelli af SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 28. maí 2021 12:56 Vænn lax úr Sakkarhólma við Bíldsfell í Soginu KL Bíldsfell við Sog hefur um árabil verið í höndum SVFR en nú verða breytingar þar á þegar nýr aðili tekur við svæðinu.
Þetta er kannski ekki nýr aðili í Veiðiþjónustu en Starir eru til að mynda með Þverá/Kjarrá og Blöndu og nú bætist Bíldsfellið við. Það hefur verið nokkuð þungur róður á svæðinu með minnkandi veiði en það var greinilega kominn tími á breytingar þrátt fyrir að samstarf landeiganda og SVFR hafi alltaf verið með ágætum. Hér er tilkynning frá SVFR SVFR hefur með samþykki landeigenda framselt samning um veiðiréttinn í Bíldsfelli til veiðifélagins Stara ehf. Samningur þessa efnis hefur verið undirritaður og Starir hafa tekið við rekstri svæðisins. Veiðiréttur þeirra veiðimanna sem keypt hafa leyfi í Bíldsfelli af SVFR er að sjálfsögðu tryggður, en félagsmenn SVFR munu njóta sérkjara hjá Störum næstu tvö árin. Aðdáendur Bíldfellsins meðal félaga í SVFR munu því áfram njóta bestu kjara á svæðinu. Jón Þór Ólason, formaður SVFR, segir samninginn sögulegan. „SVFR hefur um árabil boðið félagsmönnum aðgang að Soginu, en því tímabili lýkur hér með. Áhugi okkar félagsmanna á svæðinu hefur dregist saman undanfarin ár og þegar Starir lýstu yfir áhuga á svæðinu vorum við reiðubúin til viðræðna. Hugmyndir Stara um Bíldsfellið falla vel að hugsjónum SVFR og við óskum þeim velfarnaðar,“ segir Jón Þór. Starir ehf. er umfangsmiklar á veiðileyfamarkaði og bjóða lax- og silungsveiði á fjölmörgum svæðum. Þá eru sterk eignatengsl milli Stara og ION fishing, sem annast rekstur ION-svæðisins við Þingvallavatn, og vinna félögin því náið saman. Þau stefna á enn nánara samstarf með auknum umsvifum Stara við Sogið, en auk Bíldfells hafa Starir nú umsjón með Alviðru. Stutt er á milli þessara þriggja svæða og saman bjóða þau upp á mikla fjölbreytni. Ingólfur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Stara, segir félagið vilja taka þátt í að endurreisa laxastofninn í Soginu sem hafi átt undir högg að sækja en einnig séu persónulegar ástæður fyrir áhuga hans á svæðinu. „Ég er alinn upp á bökkum Bíldsfells, enda leigði faðir minn svæðið um árabil á mínum æskuárum. Ég hef miklar tilfinningar til Bíldfellsins, þekki það vel og veit hve möguleikarnir eru miklir til framtíðar litið. Ég er sannfærður um að Bíldsfellið mun aftur ná fyrri styrk og ég hlakka til að sjá það gerast,“ segir Ingó. SVFR óskar Störum til hamingju með Bíldsfellið og þakkar landeigendum fyrir frábært samstarf gegnum árin.
Stangveiði Mest lesið Rjúpnastofninn í niðursveiflu víða um landið Veiði Laxárdalurinn frábær áskorun í stóra urriða Veiði Brúará fyrir landi Sels til SVFR Veiði Ennþá veiðast regnboga silungar í Minnivallalæk Veiði Mikil ásókn í veiðileyfi fyrir 2023 Veiði Mikil aukning erlendra veiðimanna í silung Veiði Sogið greinilega að taka við sér Veiði Fish Partner með veiðiferðir erlendis Veiði Erlendir veiðimenn uggandi yfir líklegu eldgosi Veiði Laxinn mættur í Elliðaárnar Veiði