Lífið

Hefur farið í áttatíu og níu skimanir og sú hundraðasta á döfinni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Jóhannes Haukur Jóhannesson á líklega Íslandsmet í Covid-19 skimunum.
Jóhannes Haukur Jóhannesson á líklega Íslandsmet í Covid-19 skimunum. Vísir/Vilhelm

Líklega hafa fáir Íslendingar farið í fleiri skimanir vegna Covid-19 en leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. Hann fór í 89. skimunina í dag og reiknast honum til að hann fari í skimun númer eitt hundrað þann 3. september. Hann hefur sloppið við Covid-19 hingað til en óttast reyndar að hann hafi storkað örlögunum með því að ræða þennan mikla fjölda skimana sem hann hefur farið í.

Jóhannes Haukur greindi frá þessum mikla fjölda skimuna á Twitter í gær en þáttastjórnendur Reykjavík síðdegis á Bylgjunni gripu hann í viðtal af þessu tilefni í dag.

Ástæðan fyrir þessum gríðarlega fjölda skimana er sú að Jóhannes Haukur er við tökur á þáttunum Vikings:Valhalla á Írlandi, þar sem leikarahópurinn er skimaður fimm sinum í viku. Því veit Jóhannes upp á hár hvenær sýnataka númer 100 verður.

„Mér reiknast til að ég fari í númer 100 þann 3. september,“ sagði Jóhannes Haukur en svo heppilega vill til að hann er einmitt í fríi frá tökum þann daginn.

Því hefur hann einnig ákveðnar hugmyndir um hvernig best sé að fagna þessum áfanga.

„Ég er hérna í bæ sem heitir Greystones rétt fyrir utan Dublin. Þetta er rosalega svona hippabær. Það er voða mikið af vegan-veitingastöðum og allir í sjósundi. Svo eru einhverjar svona hippa-búðir. Ég er að spá í að kaupa eitthvað gott reykelsi og fá mér kannski hálsbrjóstsykur og leika aðeins við nefholurnar og kokið,“ sagði Jóhannes Haukur.

Ekki sömu pinnarnir

Aðspurður að því hvort sýnatökurnar væru eins á Írlandi og hérna á Íslandi sagði Jóhannes Haukur að munurinn fælist helst í sýnatökupinnunum sjálfum.

„Ég tók eftir því að pinnarnir sem eru notaðir heima eru öðruvísi en þeir sem eru notaðir hérna. Þeir eru einhvern veginn mjórri og stinnari. Hérna eru þeir aðeuns þykkari og virðast vera lausari í sér. Svo eru mismunandi útgáfur af testinu. Þeir eru hættir því hérna að fara þarna lengst aftur í kok í gegnum nefið. Núna fara þeir í kokið í gegnum munninn og svo strjúka þeir svona sitt hvora nösina í tíu til fimmtán sekúndur. Þetta tekur aðeins lengri tíma. Þetta fer ekki alveg lengst upp í nefið,“ sagði Jóhannes Haukur.

Í viðtalinu kom fram að Jóhannes Haukur hefur hingað til fengið neikvæða niðurstöðu úr öllum sýnatökunum 89, en hann sagðist reyndar mögulega vera búinn að storka örlögunum með því að ræða skimanirnar á léttu nótunum,

„Nú er ég kannski búinn að jinxa þetta. Af því að ég er að tala um þetta, ég get ekki bara haldið kjafti þá fæ ég þetta. Það er pottþétt svoleiðis,“ sagði hann hlæjandi að lokum.

Jóhannes Haukur er sem fyrr segir við tökur á þáttunum Vikings:Valhalla, þætti sem gerast 100 árum á eftir Vikings-þáttunum vinsælu. Þar leikur Jóhannes Haukur hlutverk Ólafs digra, sem var konungur Noregs á 11. öld. Í viðtalinu má heyra Jóhannes Hauk ræða nánar um hlutverkið og þættina sem verða sýndir á Netflix innan tíðar.


Tengdar fréttir

Jóhannes Haukur í nýjum víkingaþáttum Netflix

Netflix hefur nú tilkynnt aðalleikarana í nýjum víkingaþáttum, Vikings: Valhalla en þar má meðal annars finna leikarann Jóhannes Hauk Jóhannesson sem hefur slegið í gegn sem leikari á erlendri grundu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.