Lífið

Róbert og Ksenia tóku vel á móti brúðkaupsgestunum í Frakklandi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Róberti og Ksenia ásamt börnum sínum í veislunni fyrsta kvöldið eftir að gestirnir komu til Frakklands. Á myndina vantar yngsta drenginn, sem var farinn að sofa þegar myndin var tekin.
Róberti og Ksenia ásamt börnum sínum í veislunni fyrsta kvöldið eftir að gestirnir komu til Frakklands. Á myndina vantar yngsta drenginn, sem var farinn að sofa þegar myndin var tekin. Christian Oth/Oth Media Group

Róbert Wessman og Ksenia Shakhmanova ganga í hjónaband á morgun. Brúðkaupið er haldið á glæsilegu heimili þeirra í Frakklandi, Chateau St. Cernin.

„Ég kynntist Ksenia í New York og féll strax fyrir henni, segir Róbert í samtali við Vísi.

„Haustið 2018, þegar við vorum á Íslandi, bauð ég henni í Þríhnjúkagíga og bað hennar þar. Það var yndisleg stund.“

Róbert segir að undirbúningurinn fyrir brúðkaupið hafi átt hug þeirra undanfarið enda í mörg horn að líta.

„Sérstaklega á tímum Covid þar sem fjölskyldur okkar og vinir búa víðs vegar um heim.“

Um það bil hundrað manns er boðið í athöfnina og á boðslistanum er nánasta samstarfsfólk þeirra og fjölskylda. Um er að ræða margra daga veisluhöld og eru mismunandi þemu á viðburðunum og hefur þetta verið lengi í undirbúningi.

Neonskiltið með upphafsstöfum þeirra vakti mikla athygli á blómaveggnum. Gestirnir létu margir mynda sig við vegginn.Christian Oth/Oth Media Group

Þakklátur og ánægður

„Gestirnir komu til Frakklands í gær og í gærkvöldi vorum við með lítið velkomuboð með mexíkósku þema. Stóra stundin er svo á laugardag,“ segir Róbert. Margir gestanna mættu til Frakklands á einkaþotum. 

„Ég er svo þakklátur og ánægður að fólk skuli gefa sér tíma og koma hingað til að fagna þessum degi með okkur þrátt fyrir Covid-faraldur. Það skiptir okkur Ksenia miklu.“

Róbert og Ksenia fluttu til Lundúna í fyrra 2019 en bjuggu á Íslandi á meðan Ksenia lauk MBA námi við Háskólann í Reykjavík. Róbert og Ksenia eiga og reka saman í dag vínframleiðslu á Chateau St. Cernin enda eru þau bæði mikið áhugafólk um vín. Þar framleiða þau vín sem eru margverðlaunuð eins og N°1 Saint-Cernin Rouge,N°1 Saint-Cernin Blanc ogChampagne Wessman One.

Ksenia og Róbert eiga saman einn son, Róbert Ace, fæddur í mars 2019. Fyrir á Róbert tvö börn og Ksenia tvö börn sem öll búa hjá þeim. Börnin taka öll þátt í hátíðarhöldunum í kringum brúðkaupið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.