Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna yfirleitt á nóttunni, þegar flestir eru sofandi. Vekjaraklukkan mín er stillt á 05:15. Yfirleitt mættur í fiskbúðina á Sogavegi rétt fyrir klukkan sex.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Það fyrsta sem ég geri er að setja hundana út að pissa, við vorum að fá okkur tvo hvolpa. Síðan athuga ég veðurspánna fyrir daginn og næstu daga, enda byggist reksturinn minn mikið uppá veðri; hvort bátarnir sem ég kaupi af komist út að veiða fisk eða ekki.
Síðan skoða ég hvað ég keypti af fiski á fiskmarkaðinum í gær, hvað bátarnir komu með að landi og hvernig fiskvinnslan verður í byrjun dags.
Síðan, oftast hoppa ég í heitapottinn og tek tíu mínútur þar, slaka á og skipulegg daginn. Potturinn er eiginlega minn sálfræðingur. Ég kem alltaf í góðu skapi úr pottinum, ferskur, hress og glaður, tilbúinn í daginn. Ég mæli með þessu.“
Hvað einkennir þig og þína tónlist í hlutverki DJ Kristján?
„Ég er eiginlega bara partí plötusnúður. Ég vann í mörg ár á skemmtistaðnum Thorvaldsen, þegar hann var og hét það. Átti fimm góð ár þar.
Ég spila eiginlega bara alla tónlist, en meira svona eldri tónlist í bland við nýtt og ferskt efni. Undanfarið hef ég ekki spilað mikið.
Mitt síðast gigg var í 40 ára afmæli Seljaskóla þar sem voru rétt um eitt þúsund manns. Næsta gigg verður á Spáni, en ég er að fara út að spila golf og mitt hlutverk er svo að sjá um lokahófið, þar sem 200-300 manns verða í mat og drykk, sem endar svo í partí með DJ Kristjáni.
Ég hef ekki áhyggjur af því. Þetta er svo hresst lið og allir í stuði í útlöndum. Svo hefur enginn farið á diskó í næstum tvö ár.
Þannig að það er mikil tilhlökkun að fá að Dj-ast smá aftur, fá fólk til þess að dansa og brosa. Ég fæ mikið út úr því. Mér finnst rosalega gaman að skemmta fólki, þá skemmti ég mér best.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Það er alger breyting á fiskverslun minni á Sogavegi. Þar er planið að stækka verslunina, hafa meira pláss fyrir viðskiptavinina, meira vöruúrval og jafnvel að opna þar Fish&chips veitingastað.
Síðan er ég búinn að fá byggingarleyfi á Höfðabakka, þar er ætlunin að teikna og stækka verslun og húsnæði. Ég er líka að hugsa um stækkun húsnæðis á Fosshálsi þar sem ég er að selja heita potta.
Þá eru verkefni næsta árs á borðinu þar sem ég þarf að tryggja að koma vörum til landsins, þannig að ég eigi nóg til af pottum fyrir næsta ár og ég er byrjaður nú þegar að fá potta til landsins. Þetta ár var frekar erfitt vegna þess að það var eiginlega vöruskortur hjá okkur í heitum pottum. Mikil sala en erfitt að fá flutning til landsins, það hefur tekið mikið á.
Síðan er markmiðið að reyna að lækka forgjöfina í golfi. Ef tími gefst til. Mér er bara alltaf svo kalt og þoli illa að vera í kulda og finnst ekki skemmtilegt að spila inni golf. En ég verð bara að bíta á jaxlinn og æfa mig úti á æfingasvæðinu því ég get ekki hugsað mér að taka eitt ár í viðbót með hærri forgjöf en Jón Vilberg vinur minn. Það myndi kæta hann of mikið.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég geri þetta eiginlega bara autopilot. Ég er búinn að selja fisk í þrjátíu og tvö ár og þetta er alltaf sama prógrammið. Potta hef ég selt í sextán ár, það er eiginlega orðið það sama, nema að salan er búin að vera rosaleg undanfarin fjögur ár. Þetta Covid hefur sett allt á hliðina og hefur krafist meiri undirbúnings og skipulagningar. Núna er ég til dæmis að kaupa potta fyrir næsta ár sem byrjar samt eiginlega hjá mér í apríl, maí á vorin. Sem er galið að þurfa að gera með svona löngum fyrirvara en þess þarf.
Varðandi skipulagið sjálft er ég rosalega gamaldags. Ég er með allt handskrifað í dagbók. það hefur virkað fyrir mig í þrjá áratugi og virkar fínt enn. Sem betur fer, því að ég er algjör símaböðull og þá er gott að vera með dagbókina sína, alltaf á sama stað.
Hún bilar ekki og verður ekki batteríslaus, heldur utan um allt mitt og sinnir því sem ég þarf að muna.
Reyndar er ágætt að gleyma bara stundum einhverju, því maður þarf ekki að gera allt og vera alls staðar. Til dæmis er ágætt að gleyma símanum sínum heima einstaka sinnum. Það er eins og að taka sumarfrí þótt maður sé í vinnunni. Mæli með því að þið prófið þetta: Takið símalausan dag!“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég fer oftast upp í beddann um hálftíu. Horfi á tíufréttir og og sofna fljótlega eftir það. Ég er mjög fljótur að sofna. Í gamla daga gat ég sofnað í strætó þó svo það voru mikil læti þá í strætó í den...“