Svona var blaðamannafundur KSÍ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. september 2021 12:46 Arnar Þór Viðarsson kynnti hóp karlalandsliðsins fyrir leikina gegn Armeníu og Liechtenstein í dag. vísir/vilhelm Vísir var með beina útsendingu og textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem hópur íslenska karlalandsliðsins fyrir næstu leiki þess í undankeppni HM 2022 var kynntur. Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson kynnti hópinn og sat fyrir svörum á fundinum sem hófst klukkan 13:15. Upptöku frá honum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Textalýsingu frá fundinum má svo finna neðst í fréttinni. Ísland mætir Armeníu 8. október og Liechtenstein þremur dögum seinna. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli. Íslenska liðið er í fimmta og næstneðsta sæti J-riðils undankeppni HM með fjögur stig eftir sex leiki og markatöluna 6-14. Aron Einar Gunnarsson var ekki valinn í landsliðshópinn vegna utanaðkomandi ástæðna eins og Arnar orðaði það á fundinum. Hann sagðist sjálfur hafa tekið þá ákvörðun að velja Aron Einar ekki í hópinn. Fimm nýir leikmenn koma inn í hópinn frá síðustu landsleikjahrinu; Elías Rafn Ólafsson, Ari Leifsson, Sveinn Aron Guðjohnsen, Stefán Teitur Þórðarson og Elías Már Ómarsson. Þeir hafa allir leikið með A-landsliðinu nema Elías Rafn.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson kynnti hópinn og sat fyrir svörum á fundinum sem hófst klukkan 13:15. Upptöku frá honum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Textalýsingu frá fundinum má svo finna neðst í fréttinni. Ísland mætir Armeníu 8. október og Liechtenstein þremur dögum seinna. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli. Íslenska liðið er í fimmta og næstneðsta sæti J-riðils undankeppni HM með fjögur stig eftir sex leiki og markatöluna 6-14. Aron Einar Gunnarsson var ekki valinn í landsliðshópinn vegna utanaðkomandi ástæðna eins og Arnar orðaði það á fundinum. Hann sagðist sjálfur hafa tekið þá ákvörðun að velja Aron Einar ekki í hópinn. Fimm nýir leikmenn koma inn í hópinn frá síðustu landsleikjahrinu; Elías Rafn Ólafsson, Ari Leifsson, Sveinn Aron Guðjohnsen, Stefán Teitur Þórðarson og Elías Már Ómarsson. Þeir hafa allir leikið með A-landsliðinu nema Elías Rafn.
HM 2022 í Katar KSÍ Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Modric skammast sín Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Fleiri fréttir Breiðablik - Þróttur | Geta sett aðra höndina á titilinn FH - ÍBV | Hafnfirðingar þurfa sigur Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjá meira